Almenningur
styður samræmdari ESB efnahagsstjórn - Viðhorf Íslendinga
einnig kannað
26.8.2010
Almenningur í löndum ESB
styður samræmdari efnhagsstjórn á vettvangi ESB, samkvæmt
vorkönnun Eurobarometer. 75% telja aukna samræmingu í
stjórnun efnahags- og fjármála myndi styrkja getu ESB til að
ráða niðurlögum fjármálakreppunnar. Í fyrsta skipti kannaði
Eurobarometer viðhorf Íslendinga til ESB. Fram kom að 35%
aðspurðra á Íslandi bera traust til ESB og 29% telja að það
yrði Íslandi í hag að ganga í ESB.
Lesa nánar ...
Upphaf
aðildarviðræðna við Ísland
27.7.2010
Fyrsta ríkjaráðstefnan um
aðild Íslands að ESB var haldin í Brussel í dag. Ráðstefnan
markar upphaf aðildarviðræðna við Ísland. Á
ráðstefnunni var samningsrammi ESB kynntur, en hann myndar
grunn að aðildarviðræðum við Ísland. Áður en eiginlegar
samningsviðræður hefjast mun fara fram svokölluð rýnivinna,
sem felur í sér samanburð og greiningu á regluverki ESB og
löggjöf Íslands í þeim 35 köflum sem um þarf að semja.
Áætlað er að rýnivinnan hefjist í nóvember á þessu ári.
Lesa fréttatilkynningu frá framkvæmdastjórn ESB.
Sjá
myndband frá blaðamannafundi
Štefan Füle
stækkunarstjóra ESB, Steven Vanackere utanríkisráðherra
Belgíu og Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra
Íslands, sem haldinn var í dag.
Ísland
á rétt á fjárstuðningi frá ESB
14.7.2010
Nýlega gekk í
gildi reglugerðarbreyting sem veitir Íslandi rétt til
fjárstuðnings frá ESB til að búa sig undir aðild að
sambandinu. Ríki sem eru í viðræðuferli um aðild að ESB eiga
rétt á slíkum stuðningi (e. IPA - Instrument for
Pre-Accession Assistance). Stækkunarstjóri ESB, Štefan Füle,
sagði að samþykktin undirstrikaði vilja ESB til að styðja
við bakið á Íslandi í aðildarferlinu.
Lesa nánar...
Fréttabréf
sendinefndar ESB, 4. júní 2010
-Atvinnuleysi jókst lítillega
-Útstreymi gróðurhúsalofttegunda minnkar
- Leiðtogafundur ESB og Rússlands
Lesa nánar...
Fréttabréf
sendinefndar ESB, 20 maí 2010
-Skýrsla um framtíð ESB
-Vonast eftir að leiðtogaráðið samþykki í júní að hefja
aðildarviðræður við Ísland
- Grænt ljós á að Eistland taki upp evru
Lesa nánar...
ESB
setur upp neyðarsjóð
Fjármálaráðherrar ESB ákváðu á sunnudag
að setja upp sérstakan
neyðarsjóð til að styðja við fjármálakerfi evrulandanna og
tryggja fjármálastöðugleika í Evrópu. Ákvörðunin er tekin í
ljósi þróunarinnar í Grikklandi og mikils óróa á
fjármálamörkuðum. Evrulöndin og önnur aðildarríki ESB leggja
500 milljarða evra í sjóðinn, og AGS allt að 250 milljarða
evra. Ákvörðunin
byggir á 122. grein Lissabon-sáttmálans sem kveður á um að
hægt sé að veita aðildarríki fjárhagsaðstoð við sérstakar
neyðaraðstæður.
Lesa nánar...
Fréttabréf
sendinefndar ESB, 6. maí 2010
Meðal efnis:
- Efnahagspá framkvæmdastjórnarinnar
- Að útskýra ESB
- Utanríkisþjónusta ESB
Lesa nánar...
Fréttabréf
sendinefndar ESB, 23. apríl 2010
Meðal efnis:
- Tölur um fjárlagahalla og skuldastöðu
- Meta efnahagsleg áhrif öskuskýsins
- Mikill árangur af uppbyggingarstefnu ESB
Lesa nánar...
|