Sendinefnd ESB á Íslandi
EN  -  NO  -  [IS] Forsíða  |  Krækjur |   A til Ö    
Um okkur
ESB og alþjóðamál
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk
 

 

Hlutverk fastanefndarinnar

Sendinefnd Evrópusambandsins gagnvart Íslandi hefur nú hafið starfsemi sína í Reykjavík, eftir að hafa starfað í Osló um margra ára skeið.  Fastanefnd gagnvart Noregi og Íslandi var upphaflega komið á fót árið 1987, en í janúar 2010 voru sendiskrifstofurnar aðskildar og skrifstofu komið á fót í Reykjavík. Yfirmaður skrifstofunnar er Timo Summa, sendiherra. Sendinefndir ESB eru fulltrúar ESB gagnvart stjórnvöldum á Íslandi og starfa sem sendiráð. Meðal verkefna sendinefndanna er að veita upplýsingar um uppbyggingu, starfsemi og stefnumál Evrópusambandsins og miðla upplýsingum til höfuðstöðvanna í Brussel um afstöðu og hagsmuni Íslands í málum sem snerta samstarf Íslands og ESB.  Ef spurningar vakna um starfsemi Evrópusambandsins er velkomið að hafa samband (sjá að neðan).

Ráðgjafi

Hulda Herjolfsdóttir Skogland

Grænt númer: 800 8116

hulda.skogland@ec.europa.eu

Ráðgjafi

Sveinbjörn Hannesson

Grænt númer: 800 8116

sveinbjorn.hannesson@ec.europa.eu