EUVP-áætlun
Evrópusambandsins (European Union Visitors Program) veitir
einstaklingum á aldrinum 25-45 ára í löndum utan ESB tækifæri til
heimssækja stofnanir sambandsins í Brussel og Strassborg.
Markmiðið er auka tengsl, gagnkvæma þekkingu og skilning.
EUVP-áætlunin er fjármögnuð af
Evrópuþinginu og
framkvæmdastjórn ESB, sem í sameiningu sjá um framkvæmd heimsókna.
Hver heimsókn stendur yfir í 5 til 8 daga og er sniðin að þörfum hvers og eins.
ESB greiðir fyrir ferðakostnað og uppihald.
Hverjir geta tekið þátt?
EUVP-heimsóknir eru ætlaðar einstaklingum á aldrinum 25-45 ára sem
starfa í stjórnmálum, stjórnsýslu, hjá fjölmiðlum,
hagsmunasamtökum eða við fræðistörf. Heimsóknirnar eru ekki
ætlaðar námsfólki. Æskilegt er að umsækjendur hafi háskólapróf og
nokkurra ára starfsreynslu. Staðgóð þekkingu á Evrópusambandinu er
kostur.
Umsóknir og val á umsækjendum fyrir 2011
Allt að þremur umsækjendum frá Íslandi
stendur til boða þátttaka í EUVP-áætluninni á árinu 2011. Umsóknum skal
skilað inn til sendinefndar ESB á Íslandi í síðasta lagi 15. apríl 2010.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast hjá sendinefndinni.
Sendinefnd
ESB á Íslandi tilnefnir þátttakendur úr hópi umsækjenda en endanlegt val
er í höndum nefndar
undir forsæti fulltrúa frá Evrópuþinginu og framkvæmdastjórnar ESB.
Nánari
upplýsingar veita
Hulda Skogland og/eða
Sveinbjörn Hannesson
í síma 599 1066.