Sendinefnd ESB á Íslandi
  Forsíða  |  Krækjur |   A til Ö    
Um okkur
ESB og alþjóðamál
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk
 

 

Útgáfur

Sendinefndin gefur út upplýsingaefni um Evrópusambandið á íslensku eftir því sem tök eru á. Til viðbótar býður framkvæmdastjórn ESB upp á fjölbreytt úrval upplýsingaefnis um ESB á ensku, dönsku og öðrum opinberum tungumálum ESB. Sendu okkur tölvupóst og við sendum þér upplýsingaefni um hæl.

Auk þess má á heimasíðu framkvæmdastjórnar ESB finna frekara upplýsingarefni á ensku sem fæst sent án endurgjalds.

Útgáfur á íslensku

Stutt um Evrópusambandið
Nýr bæklingur fastanefndarinnar ber heitið, Stutt um Evrópusambandið, og fjallar á einfaldan og aðgengilegan hátt um starfsemi og stofnanir ESB, helstu málefnasvið ESB, og tengsl Íslands og ESB. Hægt er að hlaða niður bæklingnum hér (PDF skjal, 3 mb). Einnig er hægt að fá bæklinginn sendan með því að senda okkur póst.


 

Með ESB í vasanum
Bæklingurinn „Með ESB í vasanum" hefur nú verið uppfærður og endurútgefinn. Bæklingurinn er stuttur og hnitmiðaður og kemst auðveldlega fyrir í "rassvasanum". Fjallað er um stofnanir og ákvarðanatöku í ESB, Lissabon-sáttmálann, helstu málefnasvið ESB og tengsl Íslands og ESB. Hægt er að hlaða niður bæklingnum með því að smella hér. Einnig er hægt að fá hann sendan með því að senda okkur póst.



 

Útgáfur á öðrum tungumálum 
 

Álit framkvæmdastjórnar ESB á umsókn Íslands um aðild að ESB 
 

Bæklingur um Lissabon-sáttmálann
Lissabon-sáttmálinn útskýrður á einfaldan hátt

 

 

 

 

Almennt um ESB

How the European Union works - Your guide to the EU institutions - NÝ ÚTGÁFA!
Fjallar á skilmerkilegan hátt um hvernig Evrópusambandið er uppbyggt. 46 síður á ensku.

 

 

 

Europe in 12 lessons

Fjórða útgáfan af þessum kynningarbæklingi um Evrópusambandið. Bæklingurinn gefur góða yfirsýn yfir flesta þætti ESB, allt frá „Af hverju ESB” til „Evrópa í framtíðinni”.

Bæklingurinn er á ensku.

 

 


50 ways forward - Europe's best successes

Þessi bæklingur var gefinn út í tilefni af 50 ára afmæli Rómarsáttmálans. Bæklingurinn hefur að geyma 50 sögur um þann ávinning sem hlotist hefur af Evrópusamrunanum.

Bæklingurinn er fáanlegur á ensku.

 


Europe and you in 2006/EU og dig i 2006

Hér er fjallað um félagsleg og efnahagsleg markmið ESB á árinu 2006 og áhrif þessa markmiða á líf íbúa ESB-ríkja.

Bæklingurinn er fáanlegur á dönsku og ensku.

 

 

This is your Europe

Bæklingur og plakat byggt á „Panorama bæklingnum”. Hér er starfsemi og markmið ESB útskýrð.

Fáanlegur á dönsku og ensku.

 

In touch with the EU - Ask your questions - have your say

Nýr bæklingur sem útskýrir hvernig best sé að nálgast upplýsingar um stjórnkerfi og stofnanir ESB.

Bæklingurinn er 14 síður og er á ensku.

 

 

Efnahags- og gjaldeyrismál

One currency for one Europe: The road to the euro

Hér er að finna sögulegt yfirlit yfir þróun Efnahags- og myntbandalags Evrópu (EMU). Sérstaklega er fjallað um tilkomu evrunnar. Þá er skoðað hvaða skilyrði aðildarríki þurfi að uppfylla til að geta tekið upp evru.

 

 

Sjávarútvegsstefna ESB

The European Fisheries Fund

Hér er að finna ýmsar áhugaverðar upplýsingar um sjávarútvegssjóð Evrópusambandsins. Fjallað er meðal annars um vistvæna uppbyggingu fiskistofna, veiðar, vinnslu og markaðssetningu sjávarútvegsafurða. 

 



Fisheries and aquaculture in Europe
Í þessum bæklingi er bent á mikilvægi þess að draga úr hlutfalli smáfisks í afla og hvernig koma megi í veg fyrir brottkast, en áætlað er að 10-60% aflans sé kastað burt. Hér má því lesa hvernig Evrópusambandið hyggst takast á við þennan vanda.

 

 

Við minnum jafnframt á áskrift af rafrænu fréttabréf fastanefndarinnar

 



 link