Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg
EN  -  NO  -  [IS] Forsíða  |  Krækjur |   A til Ö    
Um okkur
ESB og alþjóðamál
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk
 

 


Ráðstefnur og fundir á vegum fastanefndar ESB

2009

Fyrirlestur Vladimir Spidla um atvinnumál í ESB
Miðvikudaginn 11. nóvember 2009 hélt framkvæmdastjóri atvinnumála ESB, Vladimir Spidla, fyrirlestur í Þjóðminjasafninu í boði fastanefndarinnar og Alþjóðamálastofnunar HÍ. Ræða Spidla.

2008

Ræða Olli Rehn um Ísland og stöðuna í stækkunarmálum ESB
Olli Rehn, framkvæmdastjóri stækkunarmála ESB hélt ræðu á vegum fastanefndarinnar í Osló 10. desember 2008. Þar fjallaði hann meðal annars um stöðu Íslands ef til aðildarviðræðna kæmi og svaraði fyrirspurnum úr sal, bæði í Osló og frá Íslandi, en fyrirlestrinum var varpað í gegn um fjarfundarbúnað til Háskólans í Reykjavík. Ræða Olli Rehn.

Eru áhrif þinga í Evrópu að aukast? Nýr ESB sáttmáli og staða Evrópuþings og þjóðþinga innan ESB/EES
Ráðstefna í samvinnu við utanríkismálanefnd Alþingis.
Hótel Nordica, 7. mars 2008
.

2007

Viðskiptastefna ESB: Eitthvað fyrir Ísland?
Morgunverðarfundur í samvinnu við Viðskiptaráð Íslands.
Grand Hótel, 22. október 2007
.

Sjávarútvegsstefna ESB: Áhrif og áskoranir
Morgunverðarfundur í samvinnu við Evrópunefnd forsætisráðherra.
Hótel Borg, 7. febrúar 2007
.

 

Aðrir viðburðir

2009

Ræða Olli Rehn í Háskóla Íslands
Framkvæmdastjóri stækkunarmála ESB, Olli Rehn var í opinberri heimsókn á Íslandi dagana 8.-9. september 2009. Hann afhenti forsætisráðherra spurningalista framkvæmdastjórnar ESB vegna umsóknar Íslands um ESB-aðild og hélt ræðu fyrir fullum hátíðarsal í Háskóla Íslands. Ræðuna má nálgast hér og myndband af ferðinni hér

2008

Neelie Kroes, framkvæmdastjóri samkeppnismála ESB í heimsókn á Íslandi
Neelie Kroes, framkvæmdastjóri samkeppnismála ESB, heimsótti Ísland heim 4. júlí 2008. Hún hélt erindi á ráðstefnu viðskiptaráðuneytisins og Samkeppniseftirlitsins um bótarétt vegna samkeppnislagabrota og átti fund með fjármálaráðherra og samkeppnisyfirvöldum. Viðtöl við Neelie Kroes voru sýnd í kvöldfréttum Sjónvarps og Stöðvar 2, 4. júlí.