|
|
|
ECJ. European Court of Justice. Evrópudómstóllinn. Verkefni Evrópudómstólsins er að gæta laga og réttar við túlkun og beitingu sáttmálanna og þeirra gerða sem af þeim leiða. Dómurinn er skipaður 15 einstaklingum tilnefndum af ríkisstjórnum aðildarríkjanna til sex ára í senn. Helmingur dómaranna er útnefndur á þriggja ára fresti og þeir velja einn úr sínum hópi til að gegna formennsku í þrjú ár. Ennfremur starfa hjá dómnum svokallaðir aðallögmenn (Advocates-General) en þeir eru valdir á sama hátt. Ef aðildarríki eða stofnun ESB er málshefjandi er dómurinn fullskipaður en að öðrum kosti eru dómarar yfirleitt þrír, fimm eða sjö. Dómstólar í aðildarríkjum ESB beita EB-rétti eins og hverjum öðrum landslögum en meginhlutverk Evrópudómstólsins er að fást við mál sem eðli samkvæmt er ekki hægt að reka fyrir dómstólum í aðildarríkjunum, svo sem deilur á milli aðildarríkja eða stofnana ESB og aðildarríkja, og að túlka og skýra lög og gerðir fyrir dómstólum aðildarríkjanna. Evrópudómstóllinn hefur gegnt mjög
mikilvægu hlutverki í þróun samstarfsins innan ESB og hefur ekki hikað við
að beita mjög víðum lögskýringum og vísa til markmiða lagagreina fremur
en orðanna hljóðan. Segja má að hann sé mun pólitískari dómur en Íslendingar
eiga að venjast. Vegna mikils fjölda mála sem býður afgreiðslu hefur dómstóllinn
komið upp nokkurskonar undirdómi (Court of First Instance) sem getur tekið ákveðin
mál til úrskurðar. |
|
|
|