The European Union in the World
Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg
EN  -  NO  -  [IS] Forsíða  |  Krækjur |   A til Ö    
Um okkur
ESB og alþjóðamál
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk

 

EFTA. European Free Trade Association. Fríverslunarsamtök Evrópu.

Fríverslunarsamtök Evrópu voru stofnuð árið 1960 með svokölluðum Stokkhólmssamningi. Upphaflega áttu Austurríki, Bretland, Danmörk, Noregur, Portúgal, Sviss og Svíþjóð aðild að samtökunum. Finnland fékk aukaaðild árið 1961 og fulla aðild 1986, Ísland gekk til liðs við EFTA árið 1970 og Liechtenstein árið 1991. Bretland og Danmörk gengu í Evrópusambandið árið 1973, Portúgal árið 1986 og Austurríki, Finnland og Svíþjóð árið 1995. Nú eru því fjögur ríki í EFTA: Ísland, Liecthenstein, Noregur og Sviss. Ísland, Liechtenstein og Noregur eiga aðild að EES (svokölluð EES/EFTA ríki) en Sviss hafnaði aðild að samstarfinu í þjóðaratkvæðagreiðslu 1992 og hefur tvíhliða viðskiptasamninga við ESB.

Fríverslun með iðnvarning hefur verið í gildi í EFTA síðan 1966 og með sjávarafurðir frá 1990. EFTA er ekki tollabandalag, eins og ESB, og því hafa ríkin frjálsræði um ytri tolla. EFTA hefur þó síðan 1990 gert fríverslunarsamninga við 14 ríki (tíu ríki í Mið- og Austur-Evrópu auk Ísrael, PLO, Marokkó og Tyrklands) og þegar þetta er skrifað er í undirbúningi fríverslunarsamningur á milli EFTA og Kanada. Ennfremur hefur EFTA gert svokallaða samstarfssamninga við nokkur ríki umhverfis Miðjarðarhafið, svo sem Albaníu, Egyptaland, Jórdaníu, Líbanon, Makedóníu og Túnis. Þessi þróun er í takt við fyrirhugaða Evrópusambandsaðild Mið- og Austur-Evrópuríkja og áform um fríverslunarsvæði ESB og ríkjanna umhverfis Miðjarðarhafið árið 2010. Með fríverslunar- og samstarfssamningum ýtir EFTA undir frjálsræði í viðskiptum og styrkir samkeppnisaðstöðu fyrirtækja í aðildarríkjunum. Jafnframt leggur EFTA sitt af mörkum til aðstoðar við efnhagsumbætur í þeim ríkjum sem væntanlega munu taka þátt í Evrópska efnhagssvæðinu í kjölfar inngöngu í Evrópusambandið. EFTA ríkin hafa samráð í ýmsum alþjóðasamtökum sem taka til efnhagssamstarfs, svo sem í Efnhags- og framfarastofnuninni (OECD) og í Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO).

Höfuðstöðvar EFTA eru í Genf en auk þess sér skrifstofa í Brussel um rekstur EES-samningsins og önnur í Luxemborg annast hagsýslugerð í samvinnu við Hagstofu Evrópusambandsins (Eurostat).

http://www.efta.int/structure/main/index.html