The European Union in the World
Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg
EN  -  NO  -  [IS] Forsíða  |  Krækjur |   A til Ö    
Um okkur
ESB og alþjóðamál
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk

 

EFTA Standing Committee. Fastanefnd EFTA-ríkjanna.

Fastanefnd EFTA-ríkjanna er einn mikilvægasti samráðs- og samstarfsvettvangur EFTA/EES ríkjanna, Íslands, Noregs og Liechtenstein. Í nefndinni er fjallað um mál sem koma til umræðu í sameiginlegu EES-nefndinni og EES-ráðinu þannig að ríkin þekki hagsmuni hvers annars og geti komið sameinuð fram gagnvart ESB. Sömu aðilar og sitja fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar fyrir hönd EFTA/EES ríkjanna hittast í fastanefndinni. Fastanefndin kemur saman fyrir alla fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar. Á vegum fastanefndarinnar eru fimm undirnefndir og fjöldi vinnuhópa, sem samsvara undirnefndum og vinnuhópum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Fastanefndin stýrir þátttöku EFTA/EES ríkjanna í nefndum og vinnuhópum ESB.