The European Union in the World
Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg
EN  -  NO  -  [IS] Forsíða  |  Krækjur |   A til Ö    
Um okkur
ESB og alþjóðamál
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk

 

ESC. Economic and Social Committee. Efnhags- og félagsmálanefndin.

222 fulltrúar frá hinum 15 aðildarríkjum ESB hittast innan vébanda Efnhags- og félagsmálanefndarinnar. Fullrúar í nefndinni eru skipaðir af ráðinu samkvæmt tilnefningu ríkisstjórna aðildarríkjanna, sem hafa samráð við samtök atvinnurekenda, launafólks, neytendasamtaka o.s.frv. Fjöldi fulltrúa er í nokkrum tengslum við mannfjölda, þannig koma 24 frá Þýskalandi (80 milljónir íbúa) en 6 frá Luxemborg (400 þúsund íbúar).

Framkvæmdastjórninni og ráðherraráðinu ber skylda til að bera undir nefndina reglur, tilmæli og aðgerðir sem snerta efnhags-, landbúnaðar-, byggða- og félagsmál. Nefndinni er ætlað að vera fulltrúi hagsmunaaðila í aðildarríkjunum. Álit hennar er ráðgefandi.

Efnahags- og félagsmálanefndin var sett á fót með Rómarsáttmálanum, árið 1957, til að gefa hagsmunaaðilum í aðildarríkjunum betri aðgang að stjórnkerfi ESB og auka þannig réttmæti ákvarðana. Nefndin hefur unnið töluvert starf vegna löggjafar og aðgerða sem taka til fjórfrelsisins svokallaða. Nefndin fundar um 10 sinnum á ári og gefur út um 180 álit/skýrslur. Ef mikið liggur við getur Efnhags- og félagsmálanefndin tekið mál upp að eigin frumkvæði og þannig þrýst á ráðherraráðið og framkvæmdastjórnina.

http://www.ces.eu.int/en/default.htm