The European Union in the World
Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg
EN  -  NO  -  [IS] Forsíða  |  Krækjur |   A til Ö    
Um okkur
ESB og alþjóðamál
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk

 

ESCB. European System of Central Banks. Samstarf evrópskra seðlabanka.

Það er í höndum „Samstarfs Evrópskra seðlabanka“ (European System of Central Banks) að skilgreina peningamála- og gengisstefnu á evrusvæðinu. Stjórn samstarfs Evrópskra seðlabanka er í höndum yfirstjórnar Seðlabanka Evrópu (Governing Council of the European Central Bank) sem í sitja forseti og varaforseti seðlabankans, aðrir meðlimir framkvæmdastjórnar bankans (Executive Board of the European Central Bank) og seðlabankastjórar þeirra ríkja sem taka fullan þátt í EMU. Alls sitja því 17 einstaklingar í fyrstu yfirstjórn bankans (6 í framkvæmdastjórninni auk 11 seðlabankastjóra aðildarríkjanna). Allir hafa jafnan atkvæðarétt í stjórninni. Það er síðan í höndum forseta, varaforseta og annarra meðlima framkvæmdastjórnar bankans að framfylgja þeirri stefnu sem yfirstjórnin ákveður.

Almenn efnhagsstefna aðildarríkjanna er að sjálfsögðu ákveðin í aðildarríkjunum sjálfum og á samstarfsvettvangi þeirra í ECOFIN (ráði fjármálaráðherra aðildarríkjanna). Gert er ráð fyrir nánu samráði um efnahagsstefnu á milli ríkjanna á „evrusvæðinu“, samanber Samkomulagið um stöðugleika og vöxt (Pact for Stability and Growth).