The European Union in the World
Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg
EN  -  NO  -  [IS] Forsíða  |  Krækjur |   A til Ö    
Um okkur
ESB og alþjóðamál
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk

 

European Union (EU) - Evrópusambandið (ESB) eða European Community (EC) -  Evrópubandalagið (EB)

Upphafið að „Evrópusamvinnunni“ var Kola- og stálbandalagið  (European Coal and Steel Community – ECSC)  sem var stofnað árið 1951. Efnahagsbandalag Evrópu – EBE (European Economic Community – EEC) og Kjarnorkubandalag Evrópu, KBE (European Atomic Energy Community - EURATOM) voru stofnuð árið 1957. Stofnanir Kola- og stálbandalagsins, Efnahagsbandalags Evrópu og Kjarnorkubandalags Evrópu voru sameinaðar í samningi sem tók gildi árið 1967. Sameinuð eru bandalögin kölluð Evrópubandalögin (European Communities).

Maastricht-sáttmálinn,  eða Sáttmálinn um Evrópusambandið (Treaty on European Union), tók gildi árið 1993. Í honum var Evrópusambandið – ESB (European Union – EU) stofnað sem samheiti fyrir Evrópubandalögin (stoð 1) auk samvinnu um utanríkis- og öryggismál (stoð 2) og samvinnu um dóms- og innanríkismál (stoð 3). Nafni Efnhagsbandalags Evrópu – EBE var á sama tíma formlega breytt í Evrópubandalagið – EB.

Samkvæmt texta Maastricht-sáttmálans er því rétt að ræða um Evrópubandalagið – EB þegar talað er um málefni og samninga sem falla undir stoð 1, t.a.m. málefni innri markaðarins og samninginn um Evrópska efnahagssvæðið – EES. Hins vegar þegar rætt er um allar stoðirnar er rétt að tala um Evrópusambandið – ESB. Nafni ráðherraráðsins og framkvæmdastjórnarinnar var ekki breytt með Maastricht sáttmálanum og Evrópusambandið var ekki gert að lögaðila. Til umræðu var að breyta þessu með Amsterdamsáttmálanum en það var ekki gert. Hins vegar ákvað ráðið að vísa til Evrópusambandsins – ESB í heiti sínu, meðal annars vegna þess að öll aðildarríki Evrópubandalagsins eru einnig aðildarríki Evrópusambandsins. Framkvæmdastjórnin hefur lítið formlegt hlutverk í stoð 2 og stoð 3 en hefur engu að síður ákveðið að vísa til Evrópusambandsins í nafni sínu. Þannig heitir fastanefnd framkvæmdastjórnarinnar fyrir Ísland og Noreg á ensku: European Union. Delegation of the European Commission. Til einföldunar og hægðarauka hefur framkvæmdastjórnin einnig farið þá leið að tala ávallt um Evrópusambandið - ESB í almennu upplýsingaefni sem hún gefur út, jafnvel þó þess sé gætt að ræða um Evrópubandalagið - EB þegar við á í textum sem hafa lagalega þýðingu.

http://europa.eu.int  
http://europa.eu.int/scadplus/leg/en/