|
|
|
European Council. Leiðtogaráð ESB.
Að minnsta
kosti tvisvar á ári koma leiðtogar aðildarríkjanna auk forseta framkvæmdastjórnarinnar
saman til funda í leiðtogaráði ESB. Yfirleitt sitja utanríkisráðherrar aðildarríkjanna
og einn fulltrúi frá framkvæmdastjórn ESB til viðbótar fundina. Einróma
samþykki fulltrúa ríkjanna þarf fyrir ákvörðunum í leiðtogaráðinu. Leiðtogaráð
ESB er mikilvægasti vettvangur ákvarðanatöku og samninga í Evrópusambandinu,
jafnvel þó ráðið sé ekki stofnun ESB í lagalegum skilningi. Síðustu tvo
áratugi eða svo hafa margar mikilvægustu ákvarðanir um framþróun,
innihald og skipulag Evrópusamvinnunar átt sér stað í leiðtogaráðinu –
þó þær hafi verið undirbúnar, skilgreindar nánar, settar í löggjöf og
framkvæmdar á vegum stofnana ESB (ráðherraráðið, framkvæmdastjórnin,
Evrópuþingið og Evrópudómstóllinn). Leiðtogaráðið hefur sífellt látið
meira til sín taka í utanríkismálum og dóms- og innanríkismálum. Auk
reglulegra funda hittist ráðið, stundum með mjög stuttum fyrirvara, til að
fá niðurstöðu í mikilvægum málum og leysa hnúta sem kunna að skapast
t.a.m. varðandi fjármögnun ESB, endurskoðun landbúnaðarstefnunnar, stækkun
sambandsins o.sfrv. http://ue.eu.int/en/Info/eurocouncil/index.htm |
|
|
|