The European Union in the World
Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg
EN  -  NO  -  [IS] Forsíða  |  Krækjur |   A til Ö    
Um okkur
ESB og alþjóðamál
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk

 

Samráð í nefndum

EFTA/EES ríkin, Ísland, Noregur og Liechteinstein, eiga skoðanaskipti við fulltrúa framkvæmdastjórnarinnar um nýjar reglur sem snerta EES-samninginn. Framkvæmdastjórn ESB ber að íhuga vel tillögur frá EFTA/EES ríkjunum um nýja löggjöf og ESB ber skylda til að senda EFTA/EES ríkjunum upplýsingar um reglur sem eru í bígerð snemma á undirbúningsstiginu svo þau hafi tækifæri til að skoða tillögurnar, bera þær saman við gildandi rétt og móta afstöðu gagnvart þeim. Sérfræðingar EFTA/EES ríkjanna eiga rétt á þátttöku í fjölda nefnda ESB og hafa þar tækifæri til að hafa áhrif á tillögur að nýjum reglum. Þeir hafa þó ekki atkvæðarétt. Þetta samráð er mjög mikilvægt fyrir alla aðila þar sem viðkomandi reglum er ætlað að ná til alls Evrópska efnhagssvæðisins.