The European Union in the World
Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg
EN  -  NO  -  [IS] Forsíða  |  Krækjur |   A til Ö    
Um okkur
ESB og alþjóðamál
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk

 

OSCE. Organisation for Security and Cooperation in Europe. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE.

Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, eru alþjóðasamtök með þátttöku 55 ríkja. Flest aðildarríkin koma frá Evrópu en auk þess eiga Bandaríkin, Kanada og ýmis ríki við austurlandamæri álfunnar aðild að samtökunum. ÖSE fæst við öryggismál í víðum skilningi og leggur vog á lóðarskálar m.a. við afvopnun, aðgerðir sem miða að því að koma í veg fyrir átök eða takmarka og draga úr átökum, lýðræðislega framkvæmd kosninga og vernd frjálsra fjölmiðla og minnihlutahópa, svo dæmi séu tekin. Markmið ÖSE er að fá aukin stöðugleika innan og á milli aðildarríkjanna með samvinnu og margskonar fyrirbyggjandi aðgerðum. Samtökin eiga rætur að rekja til Helsinki-ferilsins, svokallaða. Eftir lok kaldastríðsins hefur starfsemi og skipulag samtakanna styrkst verulega þar sem aðildarríkin hafa reynt að nota ÖSE til að koma í veg fyrir og draga úr staðbundnum átökum, t.a.m. á Balkanskaga. Nafni ÖSE var breytt 1. janúar 1995 úr RÖSE, ráðstefna um öryggi og samvinnu í Evrópu (CSCE. Conference on Security and Co-operation in Europe ), en breyting endurspeglaði breytingar á skipulagi samtakanna. Upphaflega var aðeins hægt að taka ákvarðanir innan ÖSE með einróma samþykki en frá 1992 er unnt að taka ákvarðanir með samþykki allra utan þess ríkis sem ákvörðunin/ályktunin tekur til þegar viðkomandi ríki er bert að stórkostlegum brotum á samþykktum samtakana. Þannig var Júgóslavía útlokað tímabundið frá þátttöku í störfum ÖSE 8. júlí 1992. Ísland er stofnaðili að ÖSE.

http://www.osceprag.cz/