Á forsíðu
Heim Landafræði Saga Samfélagsfög Hlekkir Um okkur Hafa samband  
   
 

Mikilvægir einstaklingar

Stofnendur Evrópusambandsins

Robert Schuman (1886 - 1963)

Utanríkisráðherra Frakka frá 1948 og forseti Evrópuþingsins 1958-1960. Í frægri ræðu 9. maí 1950 lagði hann hugmyndalegan grunn að Evrópusambandinu. Hann er einn helsti upphafsmaður Evrópusamrunans. Ár hvert er níundi maí haldinn hátíðlegur sem dagur Evrópu.

Jean Monnet (1888 - 1979)

Áhrifamaður í frönskum og evrópskum stjórnmálum sem starfaði á bak við tjöldin að friðaráætlun fyrir Evrópu eftir seinni heimsstyrjöld. Monnet var aldrei kosinn til neinna pólitískra ábyrgðarstarfa en litið er á hann sem einn mikilvægasta hugmyndafræðing Evrópusamrunans.

Konrad Adenauer (1876 - 1967)

Fyrsti kanslari Vestur-Þýskalands eftir seinni heimsstyrjöld. Vann að sáttum við Frakkland eftir stríðið og gerði Vestur-Þýskalandi kleift að taka þátt í friðsamlegu samstarfi við fyrrum óvinaríki.

 

 


Forsetar Framkvæmdastjórnarinnar

José Manuel Barroso (1956 - )

Forseti framkvæmdastjórnarinnar síðan 2003. Smellið hér til að sjá heimasíður framkvæmdastjórnarinnar.

Romano Prodi (1939 - )

Forseti framkvæmdastjórnarinnar milli 1999 og 2004. Endurbætti starfsaðferðir framkvæmdastjórnarinnar og undirbjó Evrópusambandið fyrir stækkunina árið 2004.

Jaques Delors (1925 - )

Forseti framkvæmdastjórnarinnar milli 1985 og 1995. Á starfstíma hans var lokið við að innleiða sameiginlegan innri markað

Roy Jenkins (1920 - 2003)

Forseti framkvæmdastjórnarinnar milli 1977 og 1981. Í upphafi tímabils hans sem forseti framkvæmdastjórnarinnar var sameiginlegum gjaldmiðli, evrunni, komið á fót.

Jean Rey (1902 - 1983)

Forseti framkvæmdastjórnarinnar milli 1967 og 1970. Vann að því að styrkja stofnanir sambandsins og kom m.a. á beinum kosningum til Evrópuþingsins. Lauk einnig við innleiðingu tollabandalagsins.

Walter Hallstein (1901 - 1982)

Forseti fyrstu EBE-framkvæmdastjórnarinnar milli 1958 og 1967. Mótaði einnig stofnanir og valdsvið framkvæmdastjórnarinnarinnar.

Mikilvægir einstaklingar í sögu Evrópusambandsins