Tíu ríki í austur og suðaustur Evrópu urðu aðilar að
Evrópusambandinu þann 1. maí 2004 og tvö ríki til, Búlgaría og
Rúmenía, bættust í hópinn 1. janúar 2007. Aðildarríkin eru því 27
talsins og þar búa samtals 493 milljónir manna. Fleiri ríki hafa
sótt um aðild og forsendur þess að þau geti orðið aðilar er að þau
búi við stöðugt lýðræði, virði meginreglur réttarríkisins, standi
vörð um mannréttindi og réttindi minnihluta hópa og búi við
markaðshagkerfi.
Tyrkland, Króatía og Fyrrverandi Júgóslavíulýðveldið Makedónía eru
líkleg til að verða næstu aðildarríki ESB og aðildarviðræður hafa
hafist við Tyrkland og Króatíu. Fleiri ríki á vestanverðum
Balkanskaga eins og Albanía, Bosnía, Svartfjallaland og Serbía eru
líkleg framtíðar aðildarríki.
|