The European Union in the World Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi  
 
       NO [IS] - EN              |    forsíða    |   A til Ö  |   krækjur    |

Um okkur

ESB og alþjóðamál

Stutt um ESB

Fyrir fréttafólk

 

Nýtt frá ESB febrúar 2005
 

Sjávarútvegur

Byggðamál

Samkeppnismál

Menntamál

Heimsmál

Innri markaðurinn

Umhverfismál

Viðskipti

Ókeypis útgefið efni
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sjávarútvegur

Verndaraðgerðir ESB gegn innflutningi á eldislaxi

Framkvæmdastjórnin tók ákvörðun 4. febrúar s.l. um lágmarksverð á laxi, kvótum og verndartollum sem tóku gildi 6. febrúar 2005.

Norðmenn eru sakaðir um undirboð á eldislaxi á tímabilinu 1997-2002, en alls eiga Norðmenn 55% markaðshlutdeild á ESB svæðinu. Auk þess að vera sakaðir um undirboð fá laxeldismenn í Noregi ríkisstyrk og olli þetta tvennt 18% verðhruni á innfluttum eldislaxi til ESB á þessu tímabili. Írskir og skoskir laxeldismenn hafa hvað mest barist fyrir þessum aðgerðum enda mikið hagsmunamál á þeim svæðum sem laxeldi er stundað. Norðmenn eru sagðir hafa farið langt fram úr framleiðsluáætlunum og framleitt 63.000 tonn umfram áætlanir. Offramboði á eldislaxi myndaðist við 14% meiri framleiðslu árið 2003 m.v. árið áður.

Óttast er að afleiðingar aðgerða ESB fyrir norskan eldislax verði gífurleg þar sem norskur lax verði ekki lengur samkeppnisfær.

Norðmenn vísa þessum ásökunum á bug og telja verndaraðgerðir ESB í ósamræmi við alþjóðalög. Hafa Norðmenn leitað ráðgjafar til Viðskiptastofn-unarinnar (WTO).

Málið er rakið í nýútgefinni Reglugerð Nr. 206/2005

Heimasíða framkvæmdastjórnar ESB í sjávarútvegsmálum

 

 

Byggðamál

Byggðasjóðir og uppbyggingarverkefni

Í nýrri Lissabon áætlun sem framkvæmdastjórnin sendi frá sér 2. febrúar s.l. er lögð áhersla á atvinnumál og uppbyggingu. Danuta Hübner fulltrúi fram-kvæmdastjórnarinnar í byggðamálum segir að sinn málaflokkur spili áberandi hlutverk í Lissabon áætluninni og leggur hún áherslu á að auka framleiðni og minnka atvinnuleysi. Lesa meira...

 

 UppLink to top of page

 

Samkeppnismál

Þýsku farsímafyrirtækin, T-Mobil og Vodafone, grunaðir um að misnota markaðsráðandistöðu

Framkvæmdastjórnin sendi frá sér tvær yfirlýsingar (mál nr. COMP/38.098 og  COMP/38.097) þann 10. febrúar 2005 þess efnis að Þýsku farsímafyrirtækin T-Mobil og Vodafone hafa misnotað markaðsráðandi stöðu. Svipað mál kom upp fyrir hálfu ári síðan eða 26 júlí 2004 gagnvart Bresku farsímafyrirtækjunum O2 og Vodafone. Samkvæmt samkeppnislögum (greinar 81 og 82 Rómar-sáttmálans) ESB er ekki ólöglegt að hafa markaðsráðandi stöðu en hana má ekki misnota. Fyrirtæki telst hafa markaðsráðandi stöðu ef það getur hagað og ráðstafað aðgerðum óháð samkeppnisaðilum, viðskiptavinum, birgjum og neytendum. Slík staða gefur því þann möguleika að verðleggja hærra en við samkeppnisaðstæður, selja gæðaminni vörur, leggja minna til rannsókna- og nýsköpunar sem eðlilega væri ræktað ef markaðurinn byggi við fullkomna samkeppni. Lesa meira...

 UppLink to top of page

 

Menntamál

50% af evrópskum ungdóm lærir erlent tungumál í barnaskóla

Eurydice hefur gefið út nýja rannsókn á tungumálakennslu í Evrópu. Vægi tungu-málakennslu í Evrópusambandinu er stöðugt að aukast þar sem opinber tungumál töluð í ESB eru nú orðin 20. Í rannsókninni kemur meðal annars fram að í 20 löndum Evrópusambandsins þurfa nemendur að læra tvö erlend tungumál sem hluta af sínu skyldunámi.

Hægt er að nálgast fréttina hér og skýrsluna í heild sinni hér.

 UppLink to top of page

 

Heimsmál

Framkvæmdastjórnin með frekari aðgerðir til að hjálpa við enduruppbyggingu fiskveiða og fiskeldis á svæðunum sem verst urðu úti í fljóðbylgjunum i suð-austur Asíu.

Framkvæmdastjórnin hefur ákveðið að veita sérfræðiaðstoð til að hjálpa til við að endurreisa fiskiðnaðinn í þeim löndum sem verst urðu úti flóðbylgjunum 26. desember. Á eftir ferða-þjónustu var það fiskiðnaðurinn sem varð verst úti í hamförunum. Um er að ræða langtíma-áætlun sem miðar að því að fá í gang sjálfbærar veiðar sem fyrst. Áætluninni hefur þegar verið hrint í framkvæmd.

Fréttin í heild sinni.

 UppLink to top of page

 

250 milljónir evra til að styrkja Palestínsku sjálfsstjórnar-svæðanna

Eftir heimsókn Benita Ferrero-Waldner (sem fer með málefnasvið utanríkismála fyrir framkvæmdastjórn ESB) til mið-austur landa hefur framkvæmdastjórn ESB ákveðið að veita 250 milljónum evra til að styrkja uppbyggingu sjálfsstjórnar-svæða Palestínumanna. Þessi ákvörðun var tekinn í ljósi jákvæðrar þróunar eftir að vopnahlé var undirritað í Sharm el Sheikh.

Hægt er að nálgast fréttina hér.

 UppLink to top of page

 

Evrópusambandið hleypir af stokkunum nýrri útflutningshjálp fyrir þróunarlönd

Þann 4. febrúar opnaði nýtt og endurbætt vefsvæði fyrir þá sem vilja flytja inn vörur til ESB. Þjónustan er einkum ætluð fyrirtækjum í þróunarlöndum sem vilja flytja út vörur til landa Evrópusambandsins. Sjá betur hér.

 UppLink to top of page
 

Innri markaðurinn

Bílar sem geta hringt í 112, veruleiki árið 2009

Allir nýir bílar í löndum Evrópusambandsins gætu verið útbúnir með svokölluðu „eCall” strax árið 2009. Á fundi meðal forsvarsmanna bílaiðnaðarins og Evrópusambandsins var ákveðið að stefna að því að allir nýir bílar myndu vera með þessum nýja útbúnaði árið 2009. Útbúnaðurinn gerir það að verkum að bíllinn „hringir” í neyðarlínuna ef til árekstur kemur og hægt er að fá upp nákvæma staðsetningu bílsins. Nýlegar rannsóknir sýna að eCall gæti bjargað allt að 2000 mannslífum á ári.

Öll fréttin hér.

UppLink to top of page
 

Umhverfismál

Græn vika 2005: Skólabörnum boðið að taka þátt í keppni

Framkvæmdastjórn ESB býður öllum skólabörnum aðildarríkja ESB og þeim ríkjum sem eru í aðildarumræðum á aldrinum 6 til 16 ára til að taka þátt í svokallaðri „Grænni Viku”. Um er að ræða keppni þar sem yngri börnin teikna myndir og eldri nemendum er boðið að gera stuttmyndir sem í báðum tilfellum á að endurspegla þeirra sjónarmið á loftslags breytingum. Keppnin er hluti af árlegum atburði sem ber heitið Græn vika og er ráðstefnan og sýningin opin þeim sem áhuga hafa. Græna vikan fer fram frá 31 maí til 3 júní á þessu ári í Brussel, þar sem höfuðstöðvar Evrópusambandsins eru staðsettar.

Fulltrúi framkvæmdastjórnarinnar í umhverfismálum Stavros Dimas leggur áherslu á áhrif loftlagsbreytinga og segir það mikilvægt málefni sem snerti allt lífríki jarðarinnar. Ef hitastig hækkar um nokkrar gráður á stuttum tíma verði áhrifin afdrifarík.
Þetta er í fimmta sinn sem keppnin fer fram sem European Schoolnet sér um fyrir hönd framkvæmdastjórnarinnar.

Lesa meira hér.

 UppLink to top of page

 

Viðskipti

Ný áætlun fyrir verslun og þróun

Peter MandelsonPeter Mendelson, sem fer með málefni verslunar fyrir framkvæmdastjórn ESB, lagði fram, í ræðu þann 4. febrúar, nýja áætlun sem kveður á um hvernig ESB, WTO og G8 löndin geta bætt viðskiptastefnu sína sem í þá átt sem væri þróunarlöndum hagkvæmari. Áætlunin miðar meðal annars að því að veita þróunaraðstoð í gegnum markaðsaðgang.

Hægt er að nálgast ræðuna hér.


 

UppLink to top of page

Ókeypis útgefið efni

Stutt um ESB

Stutt um ESB: Framkvæmdastjórnin gaf nýlega út upp-lýsingarit um ESB í vasabroti sem ber heitið „Stutt um ESB”. Stiklað er á stóru og farið yfir 50 ára tímatal sambandsins, helstu stofnanir ESB, EES-samninginn, helstu stefnumál ESB, fjárlög og margt fleira.  Vasabrotið hentar þeim sem vilja kynna sér Evrópusambandið á stuttum tíma og hafa við hendina hvar sem er. Hægt er að fá vasabrotsbæklinginn sendan, þér að kostnaðarlausu með því að senda tölvupóst á Írunni Ketilsdóttir, starfsnema, eða hringja í græna númerið 800 8116. Einnig er ógrynni af upplýsingum á íslensku og á ensku á heima-síðu fastanefndarinnar www.esb.is

 

UppLink to top of page

YOU BEAUTIFUL SWALLOWS!

Stjórnardeild umhverfismála framkvæmdastjórnarinnar gaf út þriðju bókina sem heitir "You beautiful swallows" á síðasta ári sem er nú einnig fáanleg á pdf formi (ensk útgáfa). Bókin er ætluð til að vekja athygli barna á umhverfismálum. Strákurinn Tom,  stúlkan Lila og vinalegur refur fá þekkingu á fuglalífi og mikilvægi þess að kjörlendi þeirra sé ekki raskað. Fræðandi og fallega myndskreytt upplýsingarit sem gæti nýst við kennslu barna á grunnskólaaldri.

 



UppLink to top of page


THE SALMON FROM THE RED SPRING

Önnur bók sem Stjórnardeild umhverfismála framkvæmda-stjórnarinnar gaf út í fyrra er einnig til að vekja athygli barna á umhverfismálum. Tom, Lila og refurinn uppgötva mikilvægi þess að halda ám ómenguðum. Fræðandi og fallega myndskreytt upplýsingarit sem gæti nýst við kennslu barna á grunnskólaaldri.

Nálgist bæklingana hér á 20 tungumálum á pdf formi

 

 

 

 UppLink to top of page

 

 

 

 

 

UPP Link to top of page