|
Nýútgefið efni
frá fastanefnd ESB í Osló
Stutt
um ESB: Framkvæmdastjórnin gaf nýlega út upplýsingarit um ESB
í vasabroti sem ber heitið „Stutt um ESB”. Stiklað er á stóru og
farið yfir 50 ára tímatal sambandsins, helstu stofnanir ESB,
EES-samninginn, helstu stefnumál ESB, fjárlög og margt fleira.
Vasabrotið hentar þeim sem vilja kynna sér Evrópusambandið á
stuttum tíma og hafa við hendina hvar sem er. Hægt er að fá
vasabrotsbæklinginn sendan, þér að kostnaðarlausu með því að senda
tölvupóst á
Írunni Ketilsdóttir, starfsnema, eða hringja í græna númerið
800 8116. Einnig er ógrynni af upplýsingum á íslensku og á ensku á
heimasíðu fastanefndarinnar
www.esb.is
Stutt
um ESB: Þetta
þarft þú að vita um stjórnarskrársáttmála ESB: Fastanefndinni er ánægja að
kynna leiðarvísi sem ætlaður er til útskýringar á stjórnarskrársáttmála
Evrópusambandsins sem leiðtogaráðið samþykkti 17. og 18. júní 2004 og
undirritaði í Róm 29. október 2004. Bæklingurinn kallast spurt og
svarað um stjórnarskrársáttmála ESB. Þú getur nálgast bæklinginn
með því að smella á myndina hér til hliðar.

ESB upplýsingar fyrir unga
fólkið:
Einnig má minna
á að fastanefndin setti nýlega á laggirnar heimasíðu sem sniðin er
sérstaklega fyrir unga fólkið. Þar er að finna ýmsa skemmtilega
spurningaleiki og fróðleiksmola. Sjá:
www.esb.is/ung
Upp
Stutt
af ESB
Loftmengun
– Hver er þín skoðun? Framkvæmdarstjórnin vinnur að því að semja
áætlun til að bæta loftgæði í Evrópu. Íbúar EES svæðisins eru beðnir um
sínar skoðanir á málinu til þess að hjálpa við stefnumörkun og endanlegt
útlit áætlunarinnar.Lesið nánar
hér
Flóðin
í suðaustur Asíu; Sjávarútvegsráðherrar ESB athuga möguleikann á að senda
fiskiskip til flóðasvæðanna: Efsta mál á dagskrá þegar
sjávarútvegsráðherrar ESB mættust 24. janúar síðastliðinn var hvernig hægt
væri að hjálpa sjávarútvegnum í suð-austur Asíu eftir flóðbylgjurnar 26.
desember. Möguleiki er að senda úrelt evrópsk skip og báta til svæðisins.
Á eftir ferðamannaiðnaðinum var það sjávarútvegurinn sem varð verst úti í
hamförunum. Lesið nánar hér
hér
Upp
Efnahagslíf
Opinber innkaup aðildarríkja ESB
beinlínutengd: Framvkæmdastjórn
ESB hefur gefið út aðgerðaráætlun um rafræn opinber innkaup til að aðstoða
aðildarríki við innleiðingu nýrrar tilskipunar sem samþykkt var á síðasta
ári (2005/15/EC og 2004/17/EC). Markmið áætlunarinnar er að auðvelda
fyrirtækjum með tölvu- og internetaðgang að bjóða út verkenfi með rafrænum
hætti milli allra aðildarríkjanna. Opinber innkaup innan ESB svara sem
nemur 16% af vergri þjóðarframleiðslu og geta því slíkar umbætur orðið
gífurlegur akkur fyrir ESB og skilað sér til neytenda og stuðlað að
aukinni samkeppni. Það verður áhugavert að fylgjast nánar með framvindu
aðgerðaráætlunarinnar.
Stjórnarskrársáttmálinn
Evrópuþingið fagnar ESB stjórnarsáttmálanum:
Miðvikudaginn 19 janúar 2005
studdi meirihluti Evrópuþingsins stjórnarsáttmála ESB sem mun taka gildi
1. nóvember 2006 ef öll aðildarríki sambandsins staðfesta sáttmálann,
annaðhvort af þinginu eða með þjóðaratkvæðagreiðslu. Níu aðildarríki áætla
að halda þjóðaratkvæðagreiðslu en aðeins tvö ríki hafa ákveðið
dagsetingar, Spánn sem áætlar að halda þjóðaratkvæðagreiðslu þann 20
febrúar næstkomandi og Lúxemborg, þann 10 júlí. Danir og Bretar hafa
ákveðið þjóðaratkvæðagreiðslu í upphafi árs 2006 og Frakkar fyrir sumarið
2005 en Pólverjar og Írar hafa ekki ákveðið dagsetningu. Í hinum 11
aðildarríkjum, þ.e. Austuríki, Eistlandi, Finnlandi, Grikklandi, Ítalíu,
Kýpur, Lettlandu, Möltu, Slóvakíu, Slóveníu og Svíþjóð, verður ákvörðun um
að staðfesta sáttmálann tekin af þjóðþingi hvers ríkis á árinu 2005. Allar
upplýsingar um sáttmálann má finna á heimasíðu ESB (http://europa.eu.int)
undir linknum “Constitution” og einnig er sáttmálinn fullbúinn birtur í
Stjórnartíðindum Evrópubandalaganna (Official
Journal C 310, 16. desember 2004).
Upp
|