The European Union in the World Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi  
 
       NO  - EN              |    forsíða    |   A til Ö  |   krækjur    |

Um okkur

ESB og alþjóðamál

Stutt um ESB

Fyrir fréttafólk

 

 

Nýtt frá ESB - September til október 2006

193 milljónir evra eyrnamerktar baráttu gegn dýrasjúkdómum.
Framkvæmdastjórnin hefur ákveðið að veita 193 milljónum evra til að uppræta og hafa eftirlit með dýrasjúkdómum á næsta ári. Upphæðinni mun verða veitt til 155 verkefna sem munu fást við dýrasjúkdóma sem hafa áhrif á heilsu bæði manna og dýra. (13/10)
Lesið meira hér.

 

Svartur listi yfir flugfélög.
Framkvæmdastjórnin hefur uppfært lista sinn yfir þau flugfélög sem ekki fá að fljúga innan Evrópusambandsins. Listi þessi er uppfærður ársfjórðungslega. Markverðustu breytingarnar á listanum eru að tvö flugfélög, frá Úganda og Kenýa, hefur verið bætt á listann. Einnig hefur öllum skráðum flugfélögum í Kirgistan, 27 að tölu, verið bætt á listann. Þá hafa nokkur flugfélög frá Kongó, Líberíu, Sierra Leone og Swazílandi verið tekin af listanum. (12/10)
Lesið meira hér.
http://air-ban.europa.eu

 

Stöðugt eldri íbúar ESB valda efnahagslegur erfiðleikum.
Lönd Evrópusambandsins standa frammi fyrir auknum útgjöldum vegna hækkun meðaldurs í ESB. Nauðsynlegt er fyrir þau lönd sem standa frammi fyrir hvað mestum vanda að borga niður skuldir, fá fleira fólk á vinnumarkaðinn og endurskipuleggja heilbrigðis- og félagsmálakerfi sín. Þetta er meðal efnis sem kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjórnar ESB.
(12/10)
Lesið meira hér.
Lesið skýrsluna í heild sinni hér.

 

10. október, alþjóðlegur dagur gegn dauðarefsingum.
Aðstoðarframkvæmdastjóri framkvæmdastjórnarinnar, Franco Frattini, hélt blaðamannafund ásamt Terry Davis, framkvæmdastjóra Evrópuráðsins til að sýna  alþjóðlegum degi gegn dauðarefsingum stuðning. 128 lönd hafa afnumið dauðarefsingar með öllu, sem er aukning um 40 lönd frá 1990. (10/10)
Lesið meira hér.

 

Stjórnun Veraldarvefsins: Framkvæmdastjórnin fagnar auknu sjálfræði.
Framkvæmdastjórnin hefur nokkur ár unnið að því að einkageirinn fengi að stjórna daglegum rekstri veraldarvefsins án afskipta stjórnvalda. Framkvæmdastjórnin fagnar því að Bandaríkjastjórn hefur gefið The Internet Corporation for Assigned Names and Numbers (ICANN) meira sjálfræði. Hlutverk ICANN er meðal annars umsjón lénanafna og IP talna. (4/10)
Lesið meira hér.
 

Niðurstaða HIV/AIDS könnunar birtar.
Framkvæmdastjórnin hefur birt niðurstöður HIV/AIDS könnunar Eurobarometer. Könnunin leiðir í ljós að kunnátta fólks innan ESB um smitleiðir HIV/AIDS er almennt góð en þó bera að geta að kunnáttan var almennt lakari í þeim 10 löndum sem gengu í ESB árið 2004. Viss vankunnátta ríkir þó enn og má þar nefna að aðeins 40% þeirra sem þátt tóku í könnuninni vissu að HIV/AIDS getur ekki smitast með kossum.
(3/10)
Lesið meira hér.

 

Búlgaría og Rúmenía í Evrópusambandið 1. janúar 2007.
Framkvæmdastjórnin hefur komist að þeirri niðurstöðu að Búlgaría og Rúmenía eru tilbúin til að ganga inn í Evrópusambandið á tilsettum tíma. Bæði lönd hafa lagt mikla vinnu í að mæta þeim skilyrðum sem Evrópusambandið lagði fram en viss sérákvæði munu gilda um þau svið þar sem enn vantar upp á.  Forseti framkvæmdastjórnarinnar José Manuel Barroso notaði tækifærið í dag og óskaði leiðtogum sem og almenningi í Rúmeníu og Búlgaríu til hamingju með þennan sögulega áfanga. (26/9)
Lesið meira hér.
Skýrslu framkvæmdastjórnarinnar má finna hér.
 

Framkvæmdastjórnin leggur fram áætlun um verndun jarðvegs.
Áætlunin inniheldur meðal annars aðgerðir til að koma í veg fyrir jarðvegseyðingu, skriðuföll og eyðileggingu ræktaðra svæða. Jarðvegsáætlunin svokallaða er sjöunda og síðasta röðinni af þemaáætlunum framkvæmdastjórnarinnar í sem lögð er fram sem hluti af sjöttu umhverfisáætlunar ESB.
(24/9)
Lesið meira hér.
 

Meginmarkmið fyrir kvótaáætlanir 2007 lagðar fram.
Framkvæmdastjórnin hefur lagt fram drög að meginatriðum sem fara skal eftir þegar kvótar fyrir 2007 verða ákveðnir. Endanlegar áætlanirnar um fiskveiðar 2007 verða svo byggðar á niðurstöðum vísindamanna sem munu  liggja fyrir í október. Markmiðið er að allar veiðar ESB verði sjálfbærar eins og markmið sameiginlegu fiskveiðistefnunnar kveða á um. (15/9)
Lesið meira hér.


 

Breytingar á lámarksálögum á áfengi.
Framkvæmdastjórnin hefur lagt fram tillögu sem kveður á um að lámarksálögur á áfengi verði hækkaðar frá og með 1. janúar 2008. Tillit verður tekið til verðbólgu sem átt hefur sér stað frá því að þessar álögur voru fyrst lagðar á árið 1992. Flest aðildarlönd ESB munu ekki verða var við þessar breytingar þar sem álögur þeirra eru hærri en þær lágmarksálögur sem tillagan gerir ráð fyrir. (11/9)
Lesið meira hér.

 

UPP Link to top of page