|
Nýtt frá ESB
- október til nóvember 2006 |
Innflytjendastefna
ESB.
Framkvæmdastjórnin kynnti nýlega tvennar breytingar á
innflytjendastefnu ESB. Sú fyrri styrkir mótun nýrrar stefnu ESB um
innflytjendamál og sú seinni nær til stjórnar á landamærum
efnahagslögsögu ESB. (30/11)
Lesið meira hér.
Aðildarviðræður
við Tyrki.
Framkvæmdastjórnin hefur lagt fram tillögur að áframhaldandi
samningaviðræðum við Tyrkland í kjölfar yfirlýsingar ESB um að
viðræður við Tyrki um hvernig þeir hyggist mæta kröfum um aðild
hefðu ekki borið árangur. (29/11)
Lesið meira hér.
Umbætur
á sykuriðnaðinum.
Mariann Fischer Boel, sem fer með málefni landbúnaðar innan
framkvæmdastjórnarinnar, hvatti í vikunni landbúnaðarráðherra ESB
landanna sem og aðila innan sykuriðnaðarins til að tryggja að
tillögur um endurskipulagningu iðnaðarins nái fram að ganga.
Markmiðið er að tryggja heilbrigða samkeppni innan sykuriðnaðarins.
(21/11)
Lesið meira hér.
Baráttan
gegn ólöglegum fiskveiðum.
Framkvæmdastjórnin fagnar áformum North-East Atlantic
Fisheries Commission (NEAFC) sem miða að því að berjast gegn
ólöglegum fiskveiðum. Joe Borg, sem fer með málefni
sjávarútvegs í framkvæmdastjórninni, segir að samkomulagið muni
valda byltingu í barátunni gegn sjóræningjaveiðum.
(17/11)
Lesið meira hér.
Tryggari
matvæli.
Tillaga framkvæmdastjórnarinnar um aukið matvælaöryggi vegna
inngöngu Rúmeníu og Búlgaríu í ESB hefur fengið góðan hljómgrunn hjá
aðildarlöndum sambandsins.
Lesið meira hér. (15/11)
Minni
skriffinnska leiðir til aukinnar landsframleiðslu.
Framkvæmdastjórnin hefur lagt fram áætlun sem miðar að því að
minnka skriffinnsku sem fyrirtæki þurfa að standa í um 25% fyrir
árið 2012. Talið er að slík lækkun muni leiða til um 1,5% hækkunar á
landsframleiðslu innan ESB. Vonast framkvæmdastjórnin til að þetta
átak muni skapa aukar fjárfestingar og fleiri störf innan
sambandsins.
Lesið meira hér. (14/11)
Nýjar
reglur ESB um raforkusölu
Framkvæmdastjórn ESB hefur samþykkt nýjar reglur um sölu á raforku
milli landa ESB. Nýju reglurnar eiga að liðka fyrir sölu á rafmagni
milli landamæra og auka samvinnu á milli flutningsaðila raforku.
Adris Piebalgs, sem fer með orkumál innan framkvæmdastjórnarinnar
sagði að með nýju reglunum væri tekið stórt skref í átt að
sameiginlegum innri orkumarkaði. (9/11)
Lesið meira hér.
Frekari
stækkun ESB
Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram nýja stefnu um framtíðarstækkun
Evrópusambandsins og getu þess til að taka inn ný aðildarríki.
Megininntakið í stefnunni er að frekari stækkun megi ekki koma niður
á getu ESB til að þróa innra samstarf sitt.
Stækkun og efling á innra samstarfi verði að geta farið saman. Ennfremur fór
fram mat á árangri tilvonandi aðildarríkja í þá átt að mæta
skilyrðum um aðild. Niðurstaða matsskýrslu um Tyrkland var t.d. sú
að mikilvægar pólitískar umbætur hafi átt sér stað en að
áhyggjuefni sé hvað hægst hafi á umbótum að undanförnu.
Lesið meira hér. (8/11)
Dýrt
að nota farsíma í útlöndum.
Í nýrri skoðanakönnun framkvæmd af Eurobarometer kemur fram að
evrópubúar forðast að nota farsíma þegar þeir ferðast til annara
evrópulanda vegna hárra gjalda. Meirihluti aðspurðra þótti að ESB
ætti að gera eitthvað í málinu
Lesið meira hér.
(7/11)
Rúmenía hefur tilnefnt
nýjan meðlim framkvæmdastjórnarinnar.
Forseti
framkvæmdastjórnarinnar, José Manuel Barroso, kynnti í dag Leonard
Orban sem mun taka sæti í framkvæmdastjórninni á næsta ári. Orban er
ráðherra í Rúmeníu og hefur haft umsjón með inngöngu Rúmeníu inn í
ESB. Orban mun fara með málefni fjöltyngis innan
framkvæmdastjórnarinnar.
Lesið meira hér. (01/11)
Málþing um stjórnun veraldarvefsins.
Fyrsta
málþing IGF (Internet Governance Forum) var sett í dag í Aþenu.
Framkvæmdastjórnin hefur gefið IGF fullan stuðning sinn og bendir á
að veraldarvefurinn er lýðræðinu mikilvægt og stuðlar að
efnahagslegri velferð. Veraldarvefurinn getur hins vegar eingöngu
sinnt þessu hlutverki ef málfrelsi og rétturinn til að finna og taka
á móti upplýsingum er varðveittur.
Lesið meira hér. (30/10)

Barroso
kynnir nýjasta meðlim framkvæmdastjórnarinnar.
Ráðherra evrópumála í Bulgaríu, Meglena Kuneva verður næsti meðlimur
framkvæmdarstjórnarinnar og mun hún fara með málefni
neytendaverndar. Hún mun taka embætti í janúar næstkomandi eða á
sama tíma og Búlgaría gengur inn í ESB.
Lesið meira hér. (26/10)
Framkvæmdastjórnin
vill banna útflutning á kvikasilfri.
Framkvæmdastjórnin hefur lagt fram lagafrumvarp sem miðar af að
banna allan útflutning á kvikasilfri frá löndum ESB. Bannið á að
taka gildi um mitt ár 2011 og miðar að því að minnka heimsframboð á
kvikasilfri. Kvikasilfur er eiturefni sem getur verið skaðlegt
mönnum sem og umhverfinu.
Lesið meira hér. (26/10)
Samið
um kvóta í Eystrasalti.
Sjávarútvegsráðherrar ESB ríkja hafa náð samkomulagi um kvóta í
Eystrasalti fyrir árið 2007. Samkomulagið kveður meðal annars á um
færri veiðidaga, minni kvóta á þorski og hert eftirlit með veiðum.
Lesið meira hér. (25/10)
Framkvæmdastjórnin harmar ákvörðun Íslendinga um að hefja
atvinnuhvalveiðar að nýju.
Stavros Dimas, sem fer með umhverfismál, og Joe Borg sem fer með
sjávarútvegsmál, innan framkvæmdastjórnarinnar sendu frá sér
sameiginlega yfirlýsingu það sem þeir hvetja Íslendinga til að
endurskoða ákvörðun sína.
Lesið meira hér. (20/10)
Rannsóknarverkefni gegn hryðjuverkum.
Framkvæmdastjórnin hefur ákveðið að veita 15 milljónum evra í
rannsóknir sem hjálpað geta í baráttunni gegn hryðjuverkum.
Fjárhæðinni verður veitt til fimmtán rannsóknarverkefna. Eitt
verkefnanna miðar að því að betur greina sprengiefni, þar með talið
sprengiefni í vökvaformi. Annað verkefni miðar að betri vörnum
vatnsbóla gegn efnavopnaárásum. (14/10)
Lesið meira hér.
|