|
Nýtt frá ESB
- Desember til Janúar 2007 |
Niðurskurður
í djúpsjávarveiðum óhjákvæmilegur
Framkvæmdastjórn ESB lýsti nýlega yfir að hún telji
óhjákvæmilegt að takmarka veiðar á djúpsjávarfiski til að koma í veg
fyrir ofveiði.
Lesið meira hér
(29/01)

Framkvæmdastjórnin vill nánara samstarf við IAEA
Framkvæmdastjórnin fundaði nýlega með Alþjóða
kjarnorkumálastofnuninni (IAEA) og rætt var um aukið samstarf á
sviði kjarnorkuöryggis.
Lesið meira hér (19/01)
Samið
um síldarkvóta fyrir 2007
ESB, Ísland, Færeyjar, Noregur og Rússland hafa komist að
samkomulagi um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum. Aðilarnar
komu sér saman um veiðar á 1.280 þús. tonnum, sem er í samræmi við
ráðgjöf fiskifræðinga. Noregur fær stærsta kvótann, eða 61%, Ísland
14,5% og ESB 6,5%. Joe Borg fulltrúi framkvæmdastjórnarinnar í
sjávarútvegsmálum fagnaði samkomulaginu og sagði það bera vott um
vilja aðilana til að koma í veg fyrir ofveiði úr stofninum.
Lesið meira hér
(18/01)
Viðhorf
til innri markaðarins
Samkvæmt nýlegri könnun Eurobarometer eru borgarar ESB landanna
ánægðir með þau tækifæri sem opnuðust með stofnun hins innri
markaðar. Skoðanakönnunin leiðir einnig í ljós að minna en helmingur
íbúa ESB telur að þeir séu vel upplýstir um réttindi sín sem íbúar á
svæði hins innri markaðar.
Lesið meira hér (15/01)
Ódýrari
millifærslur
Það er nú orðið mun ódýara að millifæra peninga á milli landa ESB.
Þetta kemur fram í skýrslu sem gerð var af framkvæmdastjórninni í
kjölfar laga sem sett voru til að draga úr kostnaði
við millifærslur milli landa.
Lesið meira hér (11/01)
Þýskaland
hefur tekið við formennsku ESB
Frá og með 1. janúar mun Þýskaland fara með formennsku innan ESB.
Þjóðverjar taka við af Finnum og munu fara með formennskuembættið
næstu 6 mánuði.
Hægt er að lesa
meira á heimasíðu formennskunnar (02/01)
Tvö
ný Evrópusambandslönd
Nú 1. janúar gengu Búlgaría og Rúmenía formlega inn í
Evrópusambandið. Íbúum ESB fjölgaði þar með um 30 milljónir við
þessa fimmtu stækkun sambandsins. Löndin sóttu um aðild 1995 og
undirbúningur fyrir inngöngu þeirra hófst árið 2000. Rúmenin Leonard
Orban og Meglena Kuneva frá Búlgaríu
tóku, samtímis stækkuninni, við embættum sínum innan
framkvæmdastjórnarinnar.
Lesið meira hér
(02/01)
Slóvenía
tekur upp evruna
Þann 1. janúar varð Slóvenía fyrsta landið, af hinum
svokölluðu nýju aðildarlöndum ESB, til að taka upp evruna. Slóvenía
er þar með þrettánda ESB landið sem nú notar evru sem gjaldmiðil
sinn.
Lesið meira hér
(02/01)
Þorskkvóti
skorinn niður um allt að 20%
Ráðherraráð ESB samþykkti nýlega aflaheimildir aðildarríkja fyrir
árið 2007 og ber þar hæst aðgerðir til að koma í veg fyrir ofveiði,
meðal annars með umtalsverðum niðurskurði á þorskkvóta.
Lesa meira hér (21/12)
Fjárlög
2007 lögð fram
Fjárlög fyrir árið 2007 voru
nýlega samþykkt af Evrópuþinginu. Met aukning var á framlögum til
málaflokka sem stuðla skula að varanlegri hagsæld innan sambandsins
sem og samkeppnishæfni ESB.
Lesið meira hér
(15/12)
ESB
auðveldar lýðræðisþátttöku
Framkvæmdastjórnin kynnti í síðustu viku tvær tillögur sem
miða að því að auðvelda ESB ríkisborgurum með aðsetur í öðru ESB
landi en sínu eigin, að kjósa og bjóða sig fram í kosningum til
Evrópuþingsins.
Lesið meira hér (13/12)
Vel heppnað þemaár hreyfanlegs
vinnuafls
Evrópsku ári til að vekja athygli á hreyfanleika vinnuafls lauk
nýverið með ráðstefnu í Lille í Frakklandi. Þar kom fram að yfir
2000 atburðir hafa verið haldnir á árinu til að vekja athygli á
réttindum og tækifærum fólks til að sækja sér vinnu í öðru ESB
landi. Margt hefur áunnist í að ryðja úr vegi hindrunum í átt til
aukins hreyfanleika þó enn sé margt ógert.
(11/12)
Lesið meira hér
Erasmus-áætlunin
20 ára!
Á nýju ári eru 20 ár síðan Erasmus-áætlun ESB var hleypt af
stokkunum. Við upphaf hátíðahalda af því tilefni sagði Barroso
forseti framkvæmdastjórnarinnar að Erasmus hefði leikið
lykilhlutverk í að koma á umbótum í háskólakerfum Evrópulanda.
Lesið meira hér (7/12)
|