The European Union in the World Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg  
 
EN  -  NO [IS]                                                                                                                                                                |  A til Ö |  krækjur  |    forsíða   
 
    
    
  
ESB og alþjóðamál
 
Stutt um ESB
Fyrir fréttafólk

 

 

Fréttir frá ESB

 

Fréttabréf fastanefndar framkvæmdastjórnar ESB

gagnvart Íslandi og Noregi - 20. júní - 4. júlí

 

 


Starfssemi ESB

Portúgal tekur við formennsku í ESB

Portúgal hefur tekið við formennsku í ESB af Þýskalandi og mun gegna formennsku til loka þessa árs. Stærsta verkefnið verður að leiða ríkjaráðstefnu ESB um nýjan sáttmála. Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja samstarf ESB við ríki Afríku og við löndin sunnan og austan við Miðjarðarhaf og blása auknu lífi í Lissabon-áætlun ESB um aukna samkeppnishæfni landa ESB.
Heimasíða portúgölsku formennskunnar


Samkomulag um nýjan sáttmála

Leiðtogar aðildarríkja ESB hafa ná samkomulagi um drög að nýjum stjórnarsáttmála. Samkomulagið felur m.a. í sér breytingar á reglum um ákvarðanatöku, breytt atkvæðavægi, nánari samvinnu í innanríkis- og dómsmálum og að komið verði á fót nýjum embættum forseta leiðtogaráðs ESB og sameiginlegs fulltrúa í utanríkismálum. Sáttmálanum er ætlað að leysa af hólmi stjórnarskrána sem var felld í þjóðaratkvæðagreiðslum í Frakklandi og Hollandi. Seinna á þessu ári mun ríkjaráðstefna ESB fá sáttmálann til umfjöllunar og loks þarf samþykki aðildarríkjanna (annaðhvort þjóðþinga eða í þjóðaratkvæðagreiðslu). Ef allt fer fram sem horfir er reiknað með að sáttmálinn geti tekið gildi á árinu 2009.
Lesið meira hér um niðurstöður leiðtogafundarins

 

Fyrsti leiðtogafundur ESB og Brasilíu

Fyrsti formlegi leiðtogafundur ESB og Brasilíu fór fram í Lissabon þann 4. júlí síðastliðinn. Tilgangur fundarins var að þétta samvinnu þessara aðila og einnig voru málefni eins og fátækt, umhverfismál og endurnýjanleg orka rædd. Lula, forseti Brasilíu mun svo eftir fundinn sækja heim framkvæmdastjórnina í Brusssel og taka þar þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um lífeldsneyti. Lesið meira hér

 

Rúmenía og Búlgaría þurfa að leggja harðar að sér

Rúmenía og Búlgaría hafa náð umtalsverðum árangri frá inngöngu í ESB en betur má ef duga skal. Einkum er umbótum í dóms- og réttarkerfum landanna ábótavant og löndin úrfa að leggja harðar að sér í að uppræta spillingu og skipulagða glæpasamstarf. Þetta eru niðurstöður skýrslu framkvæmdastjórnar ESB sem kynnt var í dag. Í henni eru einnig lagðar fram tillögur að úrbótum. Lesið meira hér

 


Viðskipti

Aðildarríki ESB ekki gert nóg til að uppræta spillingu í einkageiranum

Í nýrri skýrslu framkvæmdastjórnar ESB kemur fram að flest aðildarríki ESB hafa ekki fylgt eftir tilmælum ESB um aðgerðir til að uppræta spillingu í einkageiranum. Þar er einkum vísað til þess að aðildarríkin hafa ekki skilgreint sem refisvert athæfi, það að þiggja eða veita mútur. Bretland og Belgía eru einu löndin sem hafa framfylgt tilmælum ESB að fullu. Lesið meira hér

 


Menntamál

Hvernig er hægt að glæða áhuga ungs fólks á raungreinum?

Sérfræðingahópur á vegum framkvæmdastjórnar ESB hefur nýverið skilað af sér skýrslu þar sem kynntar eru hugmyndir um hvernig hægt sé að bregðast við minnkandi áhuga ungs fólks í Evrópu á raungreinum. Hópurinn telur mikilvægt að skólar breyti kennsluháttum í þá veru að auka virkni nemenda t.d. með því að auka þátttöku þeirra í vísinda- og tilraunastarfsemi innan veggja skólastofunnar.
Lesið meira hér


ESB á Youtube

Þann 29. júní hleypti ESB af stokkunum sinni eigin rás á hinu vinsæla vefsvæði, Youtube. „EU Tube˝ eins og stöðin er kölluð, verður notuð til að koma á framfæri því mikla magni myndbandsefnis sem ESB hefur yfir að ráða og til að ná betur til yngra fólks. Nú þegar hafa yfir 1.3 milljónir séð vinsælasta myndbandið. Lesið meira hér.

 


Innri markaðurinn

Ísland fyrir neðan miðju

Samkvæmt nýrri skýrslu frá Eftirlitsstofnun EFTA er Ísland í 18. sæti á lista yfir þau lönd sem innleiða ESB tilskipanir á tilsettum tíma. Skýrslan er gefin út á tvisvar á ári og kemur Ísland verst út af EFTA ríkjunum. Litháen kemur best út úr skýrslunni og Lettland er í öðru sæti. Hægt er að lesa um ESB löndin hér og EFTA löndin hér.


Tillögur að umbótum á evrópskum vinnumarkaði (flexicurity˝)

Framkvæmdastjórn ESB kynnti í dag tillögur sem miða að endurnýjun á evrópskum vinnumarkaði. Tillögurnar eru í anda hins s.k. flexicurity-módels sem t.d. Danir hafa haldið á lofti, og gengur út á sveigjanleika í ráðningum, samráð aðila á vinnumarkaði, eflingu endurmenntunar og að launþegar njóti ákveðins öryggisnets við atvinnumissi. Hvert aðildarríki ESB er hvatt til að leggja fram áætlun um hvernig það hyggst ná fram markmiðum „flexicurity˝. Lesið meira hér
 


Ódýrara að hringja úr farsíma milli landa á EES-svæðinu

Ráðherrar ESB-landa sem fara með fjarskiptamál hafa samþykkt nýja reglugerð sem mun hafa í för með sér verulega lækkun á hringingum úr farsíma milli landa á evrópska efnahagsvæðinu. Reglugerðin er lagalega bindandi og tekur gildi innan ESB 30. júní á þessu ári. Íslenskir farsímanotendur geta farið að hlakka til að hringja ódýrt til landa á EES-svæðinu, því búist er við að reglugerðin verði tekin upp í EES-samninginn síðar á þessu ári. Lesið meira hér
 


Samgöngur

Listi yfir ótrygg flugfélög

Framkvæmdastjórnin hefur nú birt uppfærðan lista yfir flugfélög sem eru álitin óörugg og er þeim því ekki leyft að lenda á flugvöllum Evrópusambandsins. Listinn inniheldur meðal annars öll flugfélög með flugleyfi frá Indónesíu. Lesið meira hér

 


Sjávarútvegur

Tillögur um fiskveiðikvóta fyrir 2008

Framkvæmdastjórn ESB kynnti í dag tillögur sínar um fiskveiðikvóta fyrir árið 2008. Tillögurnar fela í sér niðurskurð á kvóta í því skyni að koma í veg fyrir frekari ofveiði, en misbrestur hefur verið á að ráðherraráð ESB hafi fylgt eftir tillögum vísindamanna og framkvæmdastjórnarinnar um niðurskurð. Aðildarríki ESB og hagsmunaðilar í sjávarútvegi hafa tíma til lok júlí til að koma á framfæri athugasemdum við tillögurnar. Lesið meira hér

 


Ókeypis útgefið efni

Nýjasti bæklingur fastanefndarinnar ber heitið, Stutt um Evrópusambandið, og útskýrir hann á einfaldan og aðgengilegan hátt allar mikilvægustu stofnanir ESB og hvernig ákvarðanataka í ESB fer fram. Hægt er að hlaða niður bæklingnum hér (PDF skjal, um 3 mb). Einnig er hægt að fá bæklinginn sendan með því að senda okkur póst.

 

 

 


Skilaboð frá fastanefndinni

Fastanefndin leitar eftir starfsnemum

Fastanefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins fyrir Ísland og Noreg tekur nú við umsóknum fyrir stöðu starfsnema. Starfstíminn er 3 mánuðir og er fastanefndin staðsett í Osló.
Lesið meira hér

 

ISSN 1504-16

www.esb.is