|
Nýtt frá ESB
-
apríl-maí 2007 |
Kostnaður við farsímahringingar milli
landa ESB lækkar
Evrópuþingið hefur samþykkt með miklum meirihluta reglugerð sem
felur í sér aðgerðir til lækkunar á farsímahringingum milli landa
Evrópusambandsins, til hagsbóta fyrir almenning. Talið er nánast
formsatriði að reglugerðin verði samþykkt af ráðherrum ESB landa á
fundi ráðherraráðsins 7. júní n.k. Það myndi leiða til lækkun á
kostnaði í skrefum fram til 2009 og kæmi fyrsta lækkunin til
framkvæmda strax í sumar.
Lesið meira hér (23/05)
Metnaðarlaus
texti um sjálfbæra þróun að mati Evrópusambandsins
ESB þykir það miður að nefnd Sameinuðu Þjóðanna um sjálfbæra þróun (CSD)
komst ekki að samkomulagi um mun metnaðarfyllri texta er varðar
orkumál, loftslag, mengun og iðnþróun en raun varð á. ESB telur að
nefnd SÞ um sjálfbæra þróun sé einstakur vettvangur til að ná fram
málum sjálfbærar þróunar á heimsvísu.
Lesið meira hér (14/05)
Í átt að nýrri stefnu um málefni hafsins
Í dag þann 2. maí mun Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, setja alþjóðlega
ráðstefnu í Bremen í Þýskalandi um málefni hafsins. Á ráðstefnunni
verður fjallar um tillögur sem fram koma í nýrri Grænbók
framkvæmdastjórnar ESB. Einkum verður fjallað um kosti þess að móta
sameiginlega evrópska stefnu um málefni hafsins og leiðir til þess
að auka sjálfbæra þróun í málefnum sjávar og strandbyggða í Evrópu.
(02/05)
Lesið meira hér
Evrópskt
jafnréttisár er samstarfsaðili Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva
2007
Þetta er í fyrsta skipti í nær 20 ár þar sem Evrópusambandið
hefur tekið frumkvæði að slíku samstarfi með söngvakeppninni.
Vikuna 5-12. maí munu skilaboðum jafnréttisársins verða komið á
framfæri í Helsinki og staðið verður fyrir ýmsum atburðum.
(24/04)
Lesið meira hér
Heimasíða Evrópska
jafnréttisársins - 2007
Auðveldara aðgengi að ESB-skjölum
Í tengslum við átak ESB um að gera ákvarðanatöku í ESB gegnsærri og
almenningi betur kleift að fylgjast með málum innan stofnana ESB
hefur framkvæmdastjórn ESB lagt fram tillögur (í formi
grænbókar) sem eiga auðvelda almenningi aðgengi að skjölum
Evrópuþingsins, ráðherraráðsins og framkvæmdastjórnarinnar.
Lesið meira hér (18/04)
Kostnaður
við farsímahringingar milli landa gæti lækkað um 70%
Mikilvægt skref hefur verið tekið í átt að lækkun kostnaðar við
farsímanotkun milli landa, en eins og kunnugt er getur kostnaður við
slíka notkun verið verulegur. Nefnd í Evrópuþinginu samþykkti
nýverið tillögur framkvæmdastjórnar ESB um aðgerðir sem gætu lækkað
slíkan kostnað um allt að 70%. Tillögurnar þurfa samþykki
allsherjarfundar Evrópuþingsins (um miðjan maí n.k.) og ráðherraráðs
ESB (í júní) til að þær nái fram að ganga. Þær munu ná til alls
innri markaðar ESB.
Lesið meira hér (12/04)
|