|

Fréttir frá ESB
Fréttabréf fastanefndar framkvæmdastjórnar
ESB
gagnvart Íslandi og Noregi,
10. - 22. nóvember
2007
|
|
Alþjóðasamstarf
Leiðtogafundur
ríkja ESB og ASEAN
21.
nóvember
Tilefni fundarins var 30 ára afmæli formlegs samstarfs ESB og
Sambands Suðaustur-Asíuríkja (ASEAN). Á fundinum var røtt hvernig efla megi samstarf ESB og ASEAN. Af tilefni
fundarins sagði José Manuel Barroso forseti
framkvæmdastjórnar ESB: ,,Ég tel nánari samvinnu ESB og
ASEAN sem og samvinnu ASEAN ríkjanna innbyrðis, afar
æskilega." Þess má geta að ASEAN ríkin hyggjast koma á
sameiginlegum markaði sín á milli árið 2015 og fyrr á þessu
ári hófust viðræður um fríverslunarsamning milli ríkja ESB
og ASEAN.
Lesið meira hér.
(20/11)
|
|
Stækkun Schengen
samstarfsins
Aðildarríkjum
Schengen samstarfsins fjölgar
Innanríkisráðherrar ESB ákváðu á fundi sínum þann 8.
nóvember að veita 9 ríkjum aðild að Schengen samstarfinu.
Þessi ríki eru: Tékkland, Eistland, Ungverjaland, Lettland,
Litháen, Malta, Pólland, Slóvakía og Slóvenía. Landamæri Schengen ríkjanna á landi og sjó opnast fyrir nýju
aðildarríkjunum frá og með desember næstkomandi en landamæraeftirlit á
flugvöllum verður afnumið í mars 2008. Einnig er gert ráð
fyrir því að innan skamms muni Búlgaría, Rúmenía, Kýpur og
Sviss taka fullan þátt í samstarfinu.
(10/11)
Lesið meira hér
|
|
Hjálparstarf
Neyðaraðstoð
send til fórnarlamba fellibylsins í
Bangladess
Í kjölfar fellibylsins Sidr sem gekk á land í Bangladess 15. nóvember
síðastliðinn var send neyðaraðstoð að virði 1,5 milljónum evra.
Framkvæmdastjórnin hefur þegar sent sérfræðinga á sviði neyðaraðstoðar
til Bangladess. Að þeirra sögn ríkir mikil neyð í landinu. Talið
er
að um 280 þúsund manns hafi misst heimili sín af völdum fellibylsins. Þá
hefur talsvert af uppskeru eyðilagst og búfé farist. Til þess að draga úr líkum á
hungursneyð og smitsjúkdómum hyggst framkvæmdastjórnin verja 5 milljónum
til viðbótar í kaup á hreinu vatni, matvælum og klæðnaði auk annarra
nauðsynja.
(20/11)
Lesið meira hér.
|
|
Vísindi
Evrópa
er í fremstu röð á sviði nanótækni
Haldin var ráðstefna í Braga, Portúgal, um framtíð nanótækni. Þar munu koma saman fulltrúar atvinnulífs,
stjórnsýslu og vísinda. Mikið er lagt upp úr samstarfi
opinberra aðila og einkaaðila í rannsóknum á nanótækni og er
framkvæmdastjórn ESB stærsti fjárfestir heims á þessu
sviði. Fulltrúar framkvæmdastjórnarinnar á ráðstefnunni
verða Viviane Reding framkvæmdastjóri upplýsingasamfélagsins
og Janez Potočnik framkvæmdastjóri þekkingar og rannsókna.
Lesið meira hér
(21/11)
|
|
Innri markaður ESB
Hagsmunir
neytenda og lítilla fyrirtækja settir í forgang
José Manuel Barroso kynnti hugmyndir framkvæmdastjórnarinnar um framtíð
innri markaðar ESB. Lagt er til að hagsmunir neytenda og smáfyrirtækja verði
settir í forgang. Til þess að svo verði er m.a. lagt til að fylgst verði með
því hversu vel aðildarríki tryggi réttindi neytenda. Löndunum verður gefin
stig fyrir frammistöðu sína, þannig að auðveldara verður að bera saman stöðu
neytenda og samkeppnismála milli ríkja ESB. Einnig verður gert átak í að
upplýsa neytendur um réttindi þeirra. Markmiðið er að sem flestir njóti þess
ávinnings sem hnattvæðing hefur stuðlað að.
Lesið meira hér.
(20/11)
|
|
Samstarf
ESB og Ísraels í flugmálum
Framkvæmdastjórnin mun á næstunni hefja
viðræður við stjórnvöld í Ísrael um samstarf á sviði
flugmála. Samstarfið felur í sér að komið verði á
sameiginlegu flugsvæði, dregið verði úr markaðshindrunum og
lagaumhverfi ESB og Ísraels á þessu sviði samræmt. Þetta
er liður í nágrannastefnu ESB og áætlun um að skapa
sameiginlegt flugumferðarsvæði með ríkjum sunnan og austan
við ESB fyrir árið 2010.
Lesið meira hér.
(20/11)
|
|
Nýtt
lagaumhverfi ferðaskrifstofa mun auka samkeppni
Framkvæmdastjórnin hefur lagt til að reglur um rafræn bókunarkerfi
flugmiða skuli gerðar einfaldari og nútímalegri. Framvegis mega
flugfélög og ferðaskrifstofur semja sín á milli um gjald fyrir bókun
farmiða, ólíkt því sem má við núgildandi reglur sem eru tveggja áratuga
gamlar. Einnig verður þess gætt að eigendur bókunarkerfa misnoti ekki markaðsaðstöðu
sína. Vonast er til að þessar nýju reglur stuðli að aukinni samkeppni
farþegum til hagsbóta.
Lesið meira hér.
(15/11)
|
|
Hvernig
hefur innri markaður ESB nýst Evrópubúum?
Meðal þeirra atriða sem sameiginlegur innri markaður ESB hefur stuðlað
að eru:
-Aukin stærðarhagkvæmni fyrirtækja og aukin samkeppni.
-Auknir möguleikar fólks til að búa og starfa í öðrum ríkjum ESB
-Tollfrjáls viðskipti milli ríkja ESB.
Lesið meira hér.
(15/11)
|
|
Vilja
sameiginlegan fjarskiptamarkað
Framkvæmdastjórnin hefur kynnt tillögur um sameiginlegan
fjarskiptamarkað. Tilgangurinn er að
neytendur ESB njóti góðs af aukinni samkeppni í formi lægra
vöruverðs, meira vöruúrvals og betri þjónustu. Tillögurnar
munu m.a. auðvelda aðgengi fyrirtækja að mörkuðum allra
ríkja ESB og efla sjálfstæði samkeppniseftirlitsaðila
gagnvart hinu opinbera.
Lesið meira hér. (13/11)
|
|
Landbúnaður
Endurskoðun
landbúnaðarstefnu ESB
Í dag kynnti framkvæmdastjórnin niðurstöður endurskoðunar
sameiginlegri landbúnaðarstefnu ESB.
Unnið var m.a. út frá reynslunni af breytingum á
landbúnaðarstefnu ESB frá árinu 2003. Ein þeirra hugmynda
sem kynnt var felst í því að bændur þurfi að eiga stærra
land en áður til þess að eiga kost á opinberum styrkjum.
Lesið meira hér.
(20/11)
|
|
Menntamál
Ný
skýrsla um laun fræðimanna
Fræðimenn sem sinna rannsóknum í ríkjum ESB fá lægri laun að
meðaltali en starfsbræður þeirra í Bandaríkjunum, Japan, Ástralíu og Indlandi samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir
framkvæmdastjórnina. Þó kemur fram að launamunur milli ríkja
ESB er mjög mikill. Athygli vekur að reynsla fræðimanna
hefur mismikil áhrif á laun þeirra. Danskur fræðimaður má
búast við 90% launahækkun eftir ákveðið langt
rannsóknarstarf en í Bretlandi er hækkunin yfir sama tímabil allt að 335%.
Lesið meira hér.
(12/11)
Lesið skýrsluna hér.
|
|
Efnahagsmál
Mánaðarleg
verðbólga í október var 2,6% á ársgrundvelli
Samkvæmt reglulegum mælingum Eurostat var mánaðarleg
verðbólga í ríkjum ESB í október 0,5% sem jafngildir 2,6% á
ársgrundvelli. Það er aukning frá því í september en þá mældist
verðbólgan 2,2%. Miðað við sama tíma í fyrra (október 2006) er einnig um
aukningu að ræða því þá var verðbólgan
1,8%. Lægst mældist verðbólgan á Möltu (0,3%) en hæst í Lettlandi
(8,9%).
(15/11)
Lesið meira hér. |
|
Peningagreiðslur
innflytjenda til heimalanda sinna árið 2006
Innflytjendur sem vinna í einhverju af ríkjum ESB sendu alls
26 milljarða evra til heimalanda sinna. Þar af fóru 19
milljarðar til landa utan ESB. Mest var sent til ríkja í Afríku (7,6 millj.), Evrópu
utan ESB (5,0 millj.), Suður Ameríku (2,9 millj.) og Asíu
(2,4 millj.)
Lesið meira hér.
(13/11)
|
|
Ókeypis útgefið efni
 Skóladagbók
fyrir skólaárið 2007-2008
Meginviðfangsefni skóladagbókarinnar eru
neytendamál. Bókin hentar best ungu fólki á aldrinum 15-18
ára og inniheldur hún ýmsan fróðleik um t.d. auglýsingar og
hvernig hægt sé að verða betur meðvitaður sem neytandi.
Einnig er fáanleg handbók ætluð kennurum. Skóladagbókin er á
ensku og hægt er að sjá hana á pdf formi
hér.
Dagbókin er ókeypis en hægt er að panta hana með því að
smella
hér.
|
|
Með
ESB í vasanum
Bæklingurinn „Með
ESB í vasanum" hefur nú verið uppfærður og endurútgefinn. Bæklingurinn
er bæði stuttur og hnitmiðaður og veitir t.d. upplýsingar um stofnanir
ESB, ákvarðanatöku, nýja ESB sáttmálann ásamt því að segja frá helstu
málefnasviðum sem ESB fæst við. Hægt er að hlaða niður bæklingnum með
því að smella
hér.
Einnig er hægt að fá hann sendan með því að senda okkur
póst.
|
|

Stutt um ESB
Nýjasti
bæklingur fastanefndarinnar ber heitið, Stutt um Evrópusambandið, og
útskýrir hann á einfaldan og aðgengilegan hátt allar mikilvægustu
stofnanir ESB og hvernig ákvarðanataka í ESB fer fram. Hægt er að
hlaða niður bæklingnum
hér (PDF skjal, um 3 mb). Einnig er hægt að fá bæklinginn sendan með því
að
senda okkur póst.
|
Útgáfur á öðrum tungumálum
Hægt
er að smella hér og panta
eftirfarandi bæklinga, ásamt fleira efni.
Europe
in 12 lessons
Fjórða útgáfan af þessum kynningarbæklingi um
Evrópusambandið, skrifað af Pascal Fontaine. Bæklingurinn gefur góða
yfirsýn yfir flesta þætti ESB, allt frá „Af hverju ESB” til „Evrópa í
framtíðinni”.
Bæklingurinn er á ensku.
50
ways forward - Europe's best successes
Þessi bæklingur var gefinn út í tilefni af 50 ára
afmæli Rómarsáttmálans. Bæklingurinn hefur að geyma 50 sögur um hvernig
fólk hefur notið góðs af Evrópusamrunanum og hvernig aukin Evrópusamvinna mun gagnast fólki í framtíðinni.
Bæklingurinn er 50 síður og fáanlegur á ensku.
Europe
and you in 2006/EU og dig i 2006
Hér eru gefin 10 góð dæmi um hvernig Evrópusambandið
hefur á árinu 2006 náð sínum markmiðum til að auka félagslega og
efnahagslega velferð innan sambandsins
Bæklingurinn er fáanlegur á dönsku og ensku.
This
is your Europe
Bæklingur og plakat byggt á „Panorama bæklingnum”.
Hér er starfsemi og markmið ESB útskýrð.
Fáanlegur á dönsku og ensku.
In
touch with the EU - Ask your questions - have your say
Nýr bæklingur sem útskýrir hvernig best sé að nálgast
upplýsingar um ESB kerfið og stofnanir ESB.
Bæklingurinn er 14 síður og er á ensku.
Fisheries
and aquaculture in Europe
Í þessum bæklingi er bent á mikilvægi þess að draga úr
hlutfalli smáfisks í afla og hvernig koma megi í veg fyrir brottkast, en
áætlað er að 10-60% afla innan ESB sé kastað burt. Hér má því lesa hvernig
Evrópusambandið hyggst takast á við þennan alvarlega vanda.
One
currency for one Europe: The road to the euro
Hér er viðfangsefnið eðli og þróun Efnahags- og myntbandalags
Evrópu (EMU), allt frá árinu 1957. Sérstaklega er fjallað um tilkomu
evrunnar sem sameiginlegs gjaldmiðils. Þá er skoðað hvaða skilyrði
ríki þurfi að uppfylla til að geta tekið upp evru.
|
|
ISSN 1504-16
Fastanefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins,
Haakon VII gate 10, P.Box. 1643 Vika, N-0119 Osló, Noregi.
Grænt númer: 800 8116.
Sími: (+47) 22 83 35 83. Bréfsími: (+47) 22 83 40 55.
Tölvupóstur:
europakommisjonen@ec.europa.eu
www.esb.is |