|

Fréttir frá ESB
Fréttabréf fastanefndar framkvæmdastjórnar
ESB
gagnvart Íslandi og Noregi,
26. október -
9. nóvember
2007
|
|
Stækkun ESB
Framkvæmdaáætlun
um stækkun ESB
Framkvæmdastjórnin hefur lagt fram árlega framkvæmdaáætlun
sína um stækkun ESB. Í henni er gerð sérstök úttekt á hverju
umsóknarríki fyrir sig. Niðurstaðan er sú að ríkjunum á
vestanverðum Balkanskaga miði vel áfram með þær breytingar
sem ESB gerir kröfu um þó nokkur munur sé á milli þeirra.
Undirbúningsvinna Tyrklands fyrir aðild að ESB er á réttri
leið en þó þarf að sinna betur tjáningar-, athafna- og
trúfrelsi.
Lesið meira hér.
(06/11)
|
|
Hjálparstarf
ESB
mun verja 5 milljónum evra vegna fellibylsins Felix
Fellibylurinn Felix reið yfir Níkaragúa 4. september síðastliðinn. Strax
í kjölfar fellibylsins sendi framkvæmdastjórn ESB eina milljón evra í neyðaraðstoð. Nú tveim mánuðum síðar er ljóst að eyðilegging
fellibylsins var meiri en fyrr var talið. Talið er að um 200.000 manns
hafi misst allt sitt í fellibylnum. Þess vegna ákvað framkvæmdastjórnin að verja 5
milljónum evra til viðbótar vegna hjálparstarfsins í Níkaragúa.
Peningunum verður aðallega varið til þess að útvega hreint drykkjarvatn
og í að byggja upp klóakkerfi.
Lesið meira hér.
(07/11)
|
|
ESB
hjálpar fórnarlömbum flóðanna í Víetnam
Framkvæmdastjórnin hefur ákveðið að
verja tveimur milljónum evra til að fjármagna kaup á helstu nauðsynjum svo sem
hreinu drykkjarvatni og teppum fyrir um 200.000 fórnarlömb flóðanna í
norður- og miðhluta Víetnam. Haft verður samstarf við alþjóðlegar
hjálparstofnanir og Rauða krossinn við kaup og dreifingu
hjálpargagnanna.
Lesið meira hér.
(06/11)
|
|
Lagaumhverfi
ESB
Nýr
Lugano sáttmáli undirritaður í dag
Í dag verður undirritaður í bænum Lugano í Sviss nýr
sáttmáli sem fjallar um lögsögu dómstóla og um fullnustu
dóma á sviði einkaréttar og viðskiptaréttar. Þessi sáttmáli
mun leysa af hólmi hinn eldri Lugano sáttmála frá 1988.
Lesið meira hér.
(30/10)
|
|
Öryggismál
Nýjar
aðgerðir til að draga úr hryðjuverkaógn
Meðal þess sem tillögurnar fela í sér er að refsivert verður
að þjálfa hryðjuverkamenn og að hvetja til að
hryðjuverka. Einnig er lagt til að auðveldara verði
fyrir lögreglu að koma á samstarfi við internetþjónustur. Þá er
lagt til að upplýsingar sem flugfélög hafa um flugfarþega
verði aðgengilegar fyrir opinberar eftirlitsstofnanir.
Þó verður þess gætt að persónuupplýsingar verði ekki
misnotaðar.
(06/11)
Lesið meira hér.
|
|
Umhverfismál
Evrópskir
þróunardagar: Áhrif loftslagsbreytinga á fátæk ríki
,,Stærsta áskorunin sem mannkyn stendur nú frammi fyrir eru
loftslagsbreytingar" sagði Jose Manuel Barroso í opnunarræðu sinni. Þá
kom fram í máli Louis
Michel, framkvæmdastjóra þróunaraðstoðar og mannúðarmála, að ESB sé í fremstu röð á heimsvísu hvað varðar þróunaraðstoð.
Einnig hefur verið unnið að því að þróun í fátækum ríkjum sem og
aukin utanríkisviðskipti við þau, séu í samræmi við umhverfissjónarmið.
Lesið meira hér.
(07/11)
Heimasíða hinna evrópsku þróunardaga.
|
|
Ríki
ESB og fylki í Bandaríkjunum stofna samtök gegn hlýnun jarðar
Nokkur ríki ESB eru stofnaðilar að nýjum samtökum sem ætlað er að vera
vettvangur þar sem ríkisstjórnir aðildarríkjanna geta miðlað reynslu
sinni af mismunandi aðferðum við að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Einnig munu ríkin bera saman bækur sínar hvað
varðar reglur um viðskipti með losunarkvóta á gróðurhúsalofttegundum.
Níu aðildarríki ESB eru meðlimir í hinum nýju samtökum, þar á meðal
Þýskaland, Bretland, Frakkland, Ítalía og Spánn. Aðrir meðlimir
samtakanna eru nokkur fylki í Bandaríkjunum, m.a. Arizona, Kalifornía og New
York. Þá eru Kanada, Nýja-Sjáland og Noregur einnig aðilar að
samstarfinu.
Lesið meira hér.
(29/10)
Heimasíða samtakanna.
|
|
EES
ríkin verða hluti af evrópskum markaði fyrir viðskipti með
losunarkvóta.
Vegna tilskipunar framkvæmdastjórnarinnar nr. 2003/87/EC
verða EES löndin hluti af sameiginlegum evrópskum markaði
fyrir viðskipti með kvóta á losun koltvísýrings. Alls eru
því 30 lönd aðilar að þessum markaði þ.e. öll 27 aðildarríki ESB
auk Íslands, Noregs og
Liechtenstein.
Lesið meira hér
(26/10)
Upplýsingasíða um viðskipti með losunarkvóta.
|
|
Efnahagsmál
Aukinn
hagvöxtur í ESB
Árið 2006 var hagvöxtur í ESB 3%.
Framleiðniaukning fyrir hvern starfsmann var 1,5% árið 2006.
Atvinnuþátttaka jókst um 1,6% árið 2006. Til samanburðar var
framleiðniaukningin 1,2% að meðaltali á ári árunum 2000 -
2005. Á sama tímabili var meðalvöxtur atvinnuþátttöku 0,5% á
ári.
Lesið meira hér.
(05/11)
|
|
Atvinnuleysi
á undanhaldi í ESB
Atvinnuleysi í ESB mældist 7,0% í september 2007
en var 8,0% á sama tíma í fyrra. Mesta lækkun atvinnuleysis
á tímabilinu var í Póllandi, þar fór atvinnuleysið úr
12,9% í 8,8%. Minnsta atvinnuleysið er í Hollandi (3,1%) en
hæst í Slóvakíu (11,1%). Atvinnuleysi meðal fólks yngra en
25 ára hefur einnig minnkað. Er nú 15,1% en var 16,9%.
Atvinnuleysi í þessum aldursflokki er lægst í Hollandi
(5,6%) en hæst í Grikklandi (22,9%).
(31/10)
Lesið meira hér.
|
|
Ókeypis útgefið efni
 Skóladagbók
fyrir skólaárið 2007-2008
Meginviðfangsefni skóladagbókarinnar eru
neytendamál. Bókin hentar best ungu fólki á aldrinum 15-18
ára og inniheldur hún ýmsan fróðleik um t.d. auglýsingar og
hvernig hægt sé að verða betur meðvitaður sem neytandi.
Einnig er fáanleg handbók ætluð kennurum. Skóladagbókin er á
ensku og hægt er að sjá hana á pdf formi
hér.
Dagbókin er ókeypis en hægt er að panta hana með því að
smella
hér.
|
|
Með
ESB í vasanum
Bæklingurinn „Með
ESB í vasanum" hefur nú verið uppfærður og endurútgefinn. Bæklingurinn
er bæði stuttur og hnitmiðaður og veitir t.d. upplýsingar um stofnanir
ESB, ákvarðanatöku, nýja ESB sáttmálann ásamt því að segja frá helstu
málefnasviðum sem ESB fæst við. Hægt er að hlaða niður bæklingnum með
því að smella
hér.
Einnig er hægt að fá hann sendan með því að senda okkur
póst.
|
|

Stutt um ESB
Nýjasti
bæklingur fastanefndarinnar ber heitið, Stutt um Evrópusambandið, og
útskýrir hann á einfaldan og aðgengilegan hátt allar mikilvægustu
stofnanir ESB og hvernig ákvarðanataka í ESB fer fram. Hægt er að
hlaða niður bæklingnum
hér (PDF skjal, um 3 mb). Einnig er hægt að fá bæklinginn sendan með því
að
senda okkur póst.
|
Útgáfur á öðrum tungumálum
Hægt
er að smella hér og panta
eftirfarandi bæklinga, ásamt fleira efni.
Europe
in 12 lessons
Fjórða útgáfan af þessum kynningarbæklingi um
Evrópusambandið, skrifað af Pascal Fontaine. Bæklingurinn gefur góða
yfirsýn yfir flesta þætti ESB, allt frá „Af hverju ESB” til „Evrópa í
framtíðinni”.
Bæklingurinn er á ensku.
50
ways forward - Europe's best successes
Þessi bæklingur var gefinn út í tilefni af 50 ára
afmæli Rómarsáttmálans. Bæklingurinn hefur að geyma 50 sögur um hvernig
fólk hefur notið góðs af Evrópusamrunanum og hvernig aukin Evrópusamvinna mun gagnast fólki í framtíðinni.
Bæklingurinn er 50 síður og fáanlegur á ensku.
Europe
and you in 2006/EU og dig i 2006
Hér eru gefin 10 góð dæmi um hvernig Evrópusambandið
hefur á árinu 2006 náð sínum markmiðum til að auka félagslega og
efnahagslega velferð innan sambandsins
Bæklingurinn er fáanlegur á dönsku og ensku.
This
is your Europe
Bæklingur og plakat byggt á „Panorama bæklingnum”.
Hér er starfsemi og markmið ESB útskýrð.
Fáanlegur á dönsku og ensku.
In
touch with the EU - Ask your questions - have your say
Nýr bæklingur sem útskýrir hvernig best sé að nálgast
upplýsingar um ESB kerfið og stofnanir ESB.
Bæklingurinn er 14 síður og er á ensku.
Fisheries
and aquaculture in Europe
Í þessum bæklingi er bent á mikilvægi þess að draga úr
hlutfalli smáfisks í afla og hvernig koma megi í veg fyrir brottkast, en
áætlað er að 10-60% afla innan ESB sé kastað burt. Hér má því lesa hvernig
Evrópusambandið hyggst takast á við þennan alvarlega vanda.
One
currency for one Europe: The road to the euro
Hér er viðfangsefnið eðli og þróun Efnahags- og myntbandalags
Evrópu (EMU), allt frá árinu 1957. Sérstaklega er fjallað um tilkomu
evrunnar sem sameiginlegs gjaldmiðils. Þá er skoðað hvaða skilyrði
ríki þurfi að uppfylla til að geta tekið upp evru.
|
|
ISSN 1504-16
Fastanefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins,
Haakon VII gate 10, P.Box. 1643 Vika, N-0119 Osló, Noregi.
Grænt númer: 800 8116.
Sími: (+47) 22 83 35 83. Bréfsími: (+47) 22 83 40 55.
Tölvupóstur:
europakommisjonen@ec.europa.eu
www.esb.is |