|

Fréttir frá ESB
Fréttabréf fastanefndar framkvæmdastjórnar
ESB
gagnvart Íslandi og Noregi,
27. ágúst - 12. september
|
|
ESB á alþjóðavettvangi
Kynjajafnrétti í
þágu friðar og framþróunar
Tekist hefur að koma á samstarfi milli framkvæmdastjórnar
ESB, Þróunarsjóðs Sameinuðu þjóðanna fyrir konur og Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um kynjajafnrétti í þágu
friðar og framþróunar.
Lesið meira hér
(11/09)
|
|

Fordæming á morði á tveimur sómölskum blaðamönnum
Embætti portúgölsku formennskunnar hefur fyrir hönd Evrópusambandsins
fordæmt morð á tveimur sómölskum blaðamönnum og undirstrikar ESB
stuðning sinn við þá sem berjast fyrir málfrelsi.
Lesið meira hér
(28/08)
|
|
Umhverfismál
Fuglaflensa í
Þýskalandi
Fundist hefur fuglaflensa á bæ í Þýskalandi. Bærinn liggur í Bæjaralandi
og eru þar um 170 000 endur. Þýsk yfirvöld hafa þegar gert
framkvæmdastjórninni grein fyrir þessu og gripið til aðgerða.
Lesið
meira hér
(27/08)
|
|
Starfsemi ESB
Ársskýrsla
framkvæmdastjórnarinnar um fólksflutninga og aðlögun
Í skýrslunni eru skoðuð málefni
innflytjenda frá löndum utan Evrópusambandsins og aðlögun þeirra.
Einnig er lagt mat á opinbera stefnumótun hvers aðildarríkis fyrir
sig í þessum málaflokki.
Lesið meira hér.
(12/09)
Hægt er að nálgast skýrsluna hér
|
|
Samgöngur
Nýuppfærður svartur listi yfir flugfélög
Baráttan fyrir auknu
flugöryggi heldur áfram. Til þess að tryggja öryggi
flugfarþega hefur framkvæmdastjórn ESB búið til sérstakan lista yfir
flugfélög sem ekki standast lágmarkskröfur um flugöryggi. Þetta
er í fimmta skiptið sem listinn er
endurskoðaður.
Svarta
listann má finna hér
(11/09)
|
|
Evrópuþingið
skorar á framkvæmdastjórnina að endurskoða takmarkanir á vökva í
handfarangri flugfarþega
Nú hefur Evrópuþingið samþykkt ályktun þess efnis að skora á
framkvæmdastjórnina að aflétta núverandi takmarkanir á vökva í
handfarangri flugfarþega nema að fram komi ný gögn sem sýni fram á
nauðsyn takmarkana. Einnig kemur fram í ályktuninni að öryggisráðstafanir í
flugi gegn hryðjuverkum séu nauðsynlegar en þurfi þó að vera í réttu
hlutfalli við ógnina. Mikill meirihluti þingmanna studdi þessa ályktun. Alls
greiddu 464 þingmenn atkvæði með henni, 158 greiddu á móti henni og 70
sátu hjá.
Lesið meira hér
(05/09)
|
|
Sjávarútvegur
Nauðsynlegt að skera niður aflaheimildir
í Eystrasalti
Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram tillögur um aflaheimildir í Eystrasalti fyrir árið 2008. Fram kemur í tillögunum að ástæða sé til að
hafa áhyggjur af ofveiði á flestum svæðum í Eystrasalti og ráðleggja
vísindamenn að skorið verði niður í veiðum.
Lesið meira hér
(03/09)
|
|
Öryggismál
Auknu
fé varið í baráttuna gegn hryðjuverkum
Í dag, sex árum eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum
tilkynnti framkvæmdastjórn ESB áform sín um að
stórauka fjárveitingar til rannsóknarverkefna sem hafa það að
markmiði að minnka líkur á hryðjuverkum. Alls eru verkefnin 44
talsins og
áætlaður heildarkostnaður vegna þeirra eru 156 milljónir evra.
Lesið meira hér
(11/09)
|
|
Efnahagsmál
Efnahagshorfur
ESB: Ögn minni hagvexti spáð en í vor
Samkvæmt nýrri bráðabyrgðaspá framkvæmdastjórnar ESB mun
hagvöxtur fyrir árið 2007 vera 2,8% sem er 0,1% minna en fyrri spár
gerðu ráð fyrir. Þá er spáð 2,2% verðbólgu fyrir sama tímabil. Ef aðeins
er litið til evrusvæðisins þá er spáð 2,5% hagvexti en 2,0% verðbólgu.
Einnig má geta þess að atvinnuleysi er á undanhaldi innan ESB og á evru
svæðinu. Þar er hlutfall atvinnuleysis komið niður í 7% en það hefur
ekki verið svo lágt frá því snemma á níunda áratug síðustu aldar.
Lesið meira hér
(12/09)
|
|
Staðreyndir
og goðsagnir um fjármál Evrópusambandsins
Hér er að finna útlistun og leiðréttingar á ýmsum útbreiddum staðreyndavillum sem varða
til dæmis endurskoðun, stærð og útgjaldaliði fjárlaganna og lýðræðishalla
ESB.
Lesið meira hér
(12/09)
|
|
Kostnaður
við vinnuafl eykst
Á öðrum ársfjórðungi 2007 hefur kostnaður á hverja klukkustund vinnuafls
innan ESB hækkað um 3,2%. Á evrusvæðinu var aukningin
nokkuð lægri eða 2,5%. Í þessum tölum er tekið tillit til bæði
launakostnaðar sem og annars tilfallandi kostnaðar.
Lesið meira hér
(12/09)
|
|
Innri markaðurinn
Nýja
farsímareglugerðin:
Flestir með nýja gjaldskrá
Framkvæmdastjórn ESB
hefur opnað
heimasíðu þar sem hægt er að fylgjast hvernig
farsímafyrirtæki í aðildarríkjum ESB hafa brugðist við nýrri
reglugerð ESB sem kveður á um lækkun gjalds fyrir
farsímahringingar milli landa. Reglugerðin tók gildi 1. júlí
sl. Flest fyrirtæki hafa lækkað gjaldskrá sína en enn eru
nokkrir „svartir sauðir˝.
Lesið meira hér
(02/08)
|
|

Vilja öflugri
efnaiðnað í Evrópu
Í dag setti framkvæmdastjórn ESB á laggirnar nefnd sem hefur það
hlutverk að rannsaka stöðu og samkeppnishæfni efnaiðnaðar í Evrópu
gagnvart keppinautum víðsvegar um heim. Fulltrúar frá bæði hinu opinbera
og einkageiranum skipa nefndina. Henni er ætlað að skila af sér
niðurstöðum og ráðleggingum varðandi opinbera stefnumótun í þessum
málaflokki.
Lesið meira hér
(10/09)
|
|
Menntun og menning
 Skóladagbók
fyrir skólaárið 2007-2008
Meginviðfangsefni og þema skóladagbókarinnar eru
neytendamál. Bókin hentar best ungu fólki á aldrinum 15-18
ára og inniheldur hún ýmsan fróðleik um t.d. auglýsingar og
hvernig hægt sé að verða betur meðvitaður sem neytandi.
Einnig er fáanleg handbók ætluð kennurum. Skóladagbókin er á
ensku og hægt er að sjá hana á pdf formi
hér.
Dagbókin er ókeypis en hægt er að panta hana með því að
smella
hér.
|
|
Ókeypis útgefið efni
Nýr
bæklingur
kominn
út
Bæklingurinn „Með
ESB í vasanum" hefur nú verið uppfærður og endurútgefinn. Bæklingurinn
er bæði stuttur og hnitmiðaður og veitir t.d. upplýsingar um stofnanir
ESB, ákvarðanatöku, nýja ESB sáttmálann ásamt því að segja frá helstu
málefnasviðum sem ESB fæst við. Hægt er að hlaða niður bæklingnum með
því að smella
hér.
Einnig er hægt að fá hann sendan með því að senda okkur.
|
|

Nýjasti
bæklingur fastanefndarinnar ber heitið, Stutt um Evrópusambandið, og
útskýrir hann á einfaldan og aðgengilegan hátt allar mikilvægustu
stofnanir ESB og hvernig ákvarðanataka í ESB fer fram. Hægt er að
hlaða niður bæklingnum
hér
(PDF skjal, um 3 mb). Einnig er hægt að fá bæklinginn sendan með því
að
senda okkur póst.
|
Útgáfur á öðrum tungumálum
Hægt
er að smella hér og panta
eftirfarandi bæklinga, ásamt fleira efni
Europe
in 12 lessons
Fjórða útgáfan af þessum kynningarbæklingi um
Evrópusambandið, skrifað af Pascal Fontaine. Bæklingurinn gefur góða
yfirsýn yfir flesta þætti ESB, allt frá „Af hverju ESB” til „Evrópa í
framtíðinni”.
Bæklingurinn er á ensku
50
ways forward - Europe's best successes
Þessi bæklingur var gefinn út í tilefni af 50 ára
afmæli Rómarsáttmálans. Bæklingurinn hefur að geyma 50 sögur um hvernig
fólk hefur notið góðs af evrópusamrunanum og hvernig aukin
Evrópusamvinna mun gagnast fólki í framtíðinni.
Bæklingurinn er 50 síður og fáanlegur á ensku
Europe
and you in 2006/EU og dig i 2006
Hér eru gefin 10 góð dæmi um hvernig Evrópusambandið
hefur á árinu 2006 náð sínum markmiðum til að auka félagslega og
efnahagslega velferð innan sambandsins
Bæklingurinn er fáanlegur á dönsku og ensku
This
is your Europe
Bæklingur og plakat byggt á „Panorama bæklingnum”.
Hér er starfsemi og markmið ESB útskýrð.
Fáanlegur á dönsku og ensku
In
touch with the EU - Ask your questions - have your say
Nýr bæklingur sem útskýrir hvernig best sé að nálgast
upplýsingar um ESB kerfið og stofnanir ESB.
Bæklingurinn er 14 síður og er á ensku.
|
|
ISSN 1504-16
www.esb.is |