Sendiherrann
bloggar - ný
bloggfærsla um fjármálakreppuna á Íslandi
(16/10)
Percy Westerlund, sendiherra fastanefndarinnar hefur sent frá sér
áhugaverða bloggfærslu, þar sem hann fjallar m.a. um Ísland og
ástandið á fjármálamörkuðunum. Lesið meira
hér.
Aukin
trygging á bankainnistæðum
(15/10)
ESB ákvað þann 7. október síðastliðinn að vernda sparifjáreigendur
enn frekar með breyttum reglum og hertara eftirliti með tryggingum á
innlánsreikningum. Lesið meira
hér.
Aukin
gæði í landbúnaðarframleiðslu
(15/10)
Á dögunum lagði framkvæmdastjórnin fram svokallaða grænbók um það
hvernig hjálpa megi bændum að ná fram betri gæðum í
framleiðslu. Samkeppni eykst utanfrá og mikilvægt er að auka
samkeppnishæfni evrópskrar matvælaframleiðslu með því að auka gæði.
Vonast er til að tillögur grænbókarinnar skili sér inn í löggjöf
ESB. Lesið meira
hér.
Þróun
nýrrar orku fyrir framtíðina
(14/10)
Á dögunum kynnti
framkvæmdastjórnin sérstaka áætlun sem snýr að þróun á efnarafölum
og nýtingu vetnis sem orkugjafa. Var þetta gert í samvinnu við
helstu aðila í evrópskum iðnaði. Áætlunin er liður í aðgerðum ESB
gegn loftslagsbreytingum. Lesið meira
hér.
Hávær
tónlist og heyrnarskaði (13/10)
Vísindamenn vara við því að hlustun á háværri tónlist í heyrnartólum
geti leitt til varanlegs heyrnarskaða. Ástæða þess að ESB beinir
sjónum sínum að þessu nú er að nýlega hefur það komið í ljós að
5-10% tónlistarunnenda eiga í hættu að hljóta slíkan heyrnarskaða.
Framkvæmdastjórnin hyggst halda ráðstefnu snemma á næsta ári til að
ræða frekari varúðarreglur. Lesið meira
hér.
Skýrari
lög um rafeyri
(13/10)
Framkvæmdastjórnin hefur lagt fram tillögu sem miðar að því að
umbreyta reglum sem í gildi eru um rafeyri (e. electronic money).
Tillagan kemur í kjölfarið á ítarlegri skoðun á núgildandi reglum en
ýmsu hefur þótt ábótavant í þeim reglum. Lesið meira
hér.
Ný
tilskipun um réttindi neytenda
(9/10)
Framkvæmdastjórnin hefur lagt fram nýja tilskipun um réttindi
neytenda sem sameinar fjórar eldri tilskipanir á þessu sviði. Vonast
er til að tilskipunin stuðli að því að bæta enn frekar
regluverk ESB á sviði netverslunar og neytendaverndar, til dæmis
hvað varðar skilarétt, endurgreiðslu og verðupplýsingar. Lögð er
áhersla á að upplýsingar um réttindi neytanda liggi fyrir þegar kaup
eru gerð. Lesið meira
hér.
Sveitarfélög
og þróunaraðstoð
(9/10)
Í tilefni evrópsku þróunardaganna sem haldnir verða í nóvember
næstkomandi kallar framkvæmdastjórnin eftir aukinni þátttöku
sveitarfélaga í þróunaraðstoð. Sífellt fleiri sveitarfélög fjármagna
nú þegar eigin þróunarverkefni en í orðsendingu
framkvæmdastjórnarinnar kemur fram að stefnt sé að auka enn frekar
vægi staðbundinna stjórnvalda í mótun þróunarstefnu ESB. Lesið meira
hér.
Aukinn
réttur kvenna til fæðingarorlofs
(6/10)
Milljónir kvenna um alla Evrópu munu fá lengra fæðingarorlof
samkvæmt nýrri tillögu frá framkvæmdastjórninni. Tilgangurinn er
meðal annars að hjálpa konum að ná jafnvægi á milli vinnu og
fjölskyldulífs og auka þátttöku kvenna á vinnumarkaðnum. Lesið meira
hér.
Hvert
fara peningar ESB?(3/10)
Nýlega hleypti framkvæmdastjórnin af stokkunum vefsíðu sem veitir
öllum sem áhuga hafa, aðgang að upplýsingum um styrkveitingar,
samninga og annan fjárhagslegan stuðning. Þetta er liður í að auka
enn frekar gegnsæi í ESB. Lesið meira
hér.
|